Menningarhátíðin Mannfólkið breytist í slím fer fram 16. – 18. júlí á Akureyri. Hátíðin er kennd við listasamsteypuna MBS sem að henni stendur og hefur gert frá árinu 2018. Upphaf listasamsteypunnar MBS nær aftur til ársins 2010 en frá stofnun hefur samlagið staðið fyrir sjálfstæðri tónlistarútgáfu sem nú telur 22 breið- og þröngskífur og 11 stökla auk þess að hafa haldið ótal tónlistarviðburði.
Helsta markmið Mannfólkið breytist í slím er að efla menningarlífið á Akureyri og nágrenni á forsendum svæðisins með áherslu á listafólk utan meginstrauma og innan jaðar- og grasrótarkúltúrs. Sérstakur fókus er á listafólk úr nærumhverfinu, fjölbreytni stefna og jöfn kynjahlutföll flytjenda. Hátíðin hverfist mest um tónlist en hefð hefur skapast fyrir gjörningalist í bland, sem og atriði sem dansa mitt á milli listformanna tveggja.
Mannfólkið breytist í slím fer jafnan fram í hráum iðnaðarrýmum og aldrei á sama stað. Í ár mun MBS taka yfir tæplega 1.000 fermetra iðnaðarrými í fyrrum verksmiðjuhverfi að Dalsbraut rétt sunnan Glerár á Akureyri. Það að vera haldin utan hefðbundinna tónleikastaða og á nýjum stað ár hvert gefur hátíðinni gríðarlega sérstöðu og hefur hún nú orðið að mótandi afli í menningarlandslagi Norðurlands sumar hvert. Sérstaða verkefnisins er ekki síður fólgin í innsetningum innan viðburðarýmanna þar sem ægir saman myndlist, textíl og framúrstefnulegri hönnun í bland við hefðbundna innviði og tækjabúnað sem tilheyrir nútíma viðburðahaldi. Hópurinn sem að verkefninu kemur hefur þannig öðlast einstaka færni í að umbreyta óhefluðum svæðum í frambærilega tónleikastaði á mettíma.
Sérstaða Mannfólkið breytist í slím felst einnig í að snúa við hefðbundinni nálgun sem einkennt hefur tónlistarhátíðir á landsbyggðinni. Þá er listafólk og þátttakendur flutt frá Reykjavík og á smærri staði. MBS byggir dagskrána hinsvegar að mestu á fjölbreyttum hópi listafólks frá Norðurlandi sem kemur fram á heimavelli. Fyrirkomulag sem nærir vistkerfi sjálfstæðs menningarstarfs og grasrót til langs tíma.
Í ár verður fyrrum þungamiðju norðlensks iðnaðar breytt í suðupunkt neðanjarðarsenunnar þessa einu helgi í júlí. Fram koma 18 atriði sem spanna stefnur frá indí- og dauðarokki yfir í suður-ameríska kúmbíu og tilraunakennda raftónlist og tekknó.
Atriði á Mannfólkið breytist í slím 2026:
Basilisk
Baukur
BKPM
Chögma
Conjunto Media Luna
Cyber
Davíð Máni
Hekla Björt Helgadóttir (Verndari MBS 2026)
Krassoff
LiteFun
Ronja
Skelkur í bringu
Sólför
The Cheap Cuts
Urðun
Venus Volcanism
Volruptus & In3dee
Þorsteinn Kári
Enginn aðgangseyrir er á Mannfólkið breytist í slím heldur er gestum frjálst að greiða eftir getu.
Allar nánari upplýsingar má finna á heimasíðu og miðlum MBS:
Viðburður Mannfólkið breytist í slím 2026 á facebook:










