Hédna – sýning Myndlistarfélagsins á Akureyri opnar á laugardaginn 

Myndlistarfélagið á Akureyri opnar sýningu sína Hédna laugardaginn 9. maí kl. 15 í Menningarhúsinu Hofi.

Á Akureyri starfar fjölbreyttur hópur myndlistarmanna sem endurspeglar vöxt á sviði myndlistar. Menningarfélag Akureyrar vill með samstarfi sínu við Myndlistarfélagið styðja við þá öflugu grasrót myndlistarfólks og gera hana enn sýnilegri fyrir íbúa og ferðafólk, innlent sem erlent. Afraksturinn er sýningin Hédna þar sem ólík tjáningarform myndlistarinnar birtist okkur í verkum sextíu og eins félaga í Myndlistarfélaginu, sem veita okkur innsýn í myndheim sinn.

Tvö ár eru síðan Myndlistarfélagið setti upp sýningu í Hofi, sú sýning heppnaðist afbragðs vel enda sýndi hún skemmtilegan þverskurð af myndlist nútímans, líkt og nú. Sýningin í sumar mun án efa heilla fjöldamarga gesti hússins, einhver verk munu jafnvel rata í tösku þeirra eða með póstinum til Ástralíu, Spánar eða Svíþjóðar, eins og raunin var fyrir tveimur árum. 

Myndlistarfélagið var stofnað í janúar árið 2008 og er eitt aðildarfélaga Sambands íslenskra myndlistarmanna. Í því eru nú rúmlega 100 myndlistarmenn, flestir búsettir á Akureyri eða á Norðurlandi, en allir myndlistarmenn geta sótt um aðild að félaginu óháð búsetu. Í félaginu er fjölbreyttur hópur ólíkra myndlistarmanna sem endurspeglar gróskuna í myndlist á landinu.

Myndlistarfélagið rekur Mjólkurbúðina, sal Myndlistarfélagsins í Listagilinu á Akureyri og kappkostar að bjóða upp á framsæknar og fjölbreyttar sýningar erlendra og íslenskra listamanna ásamt því að sýna verk félagsmanna.

Þetta er fjórða sýningin sem félagar í Myndlistarfélaginu setja upp í Menningarhúsinu Hofi í samvinnu við Menningarfélag Akureyrar og Kistu. 

Hér má sjá nöfn þess listafólks sem á verk á sýningunni:

Aðalbjörg María Ólafsdóttir – Adda

Aðalsteinn Þórsson

Anna Gunnarsdóttir

Anna Þóra Karlsdóttir

Arna Guðný Valsdóttir

Ásta Bára Pétursdóttir

Bergþór Morthens

Björg Eiríksdóttir

Borghildur Guðmundsdóttir

Brynhildur Kristinsdóttir

Brynja Harðardóttir Tveiten

Dagrún Matthíasdóttir

Edda Söe

Egill Logi Jónasson

Elísabet Ásgríms

Erlingur Valgarðsson

Erwin van der Werve

Freyja Reynisdóttir

Fríða Karlsdóttir

Gillian Pokalo

Guðbjörg Ringsted

Guðmundur Ármann Sigurjónsson

Guðrún H. Bjarnadóttir

Guðrún Pálína Guðmundsdóttir

Guðrún Sigurðardóttir

Halldóra Helgadóttir

Hallgrímur Stefán Ingólfsson

Hekla Björt Helgadóttir

Helga Björg Jónasardóttir

Herdís Björk Þórðardóttir

Hjördís Frímann

Hlynur Hallsson

Hólmfríður Bjartmarsdóttir

Hrefna Harðardóttir

Hrönn Einarsdóttir

Jóna Bergdal Jakobsdóttir

Jónasína Arnbjörnsdóttir

Jónína Björg Helgadóttir

Jónína Mjöll Þormóðsdóttir

Jonna Jónborg Sigurðardóttir

Joris Rademaker

Karl Guðmundsson

Karólína Baldvinsdóttir

Kristinn G. Jóhannsson

Kristján Helgason

Marsibil G. Kristjánsdóttir

Ólafur Sveinsson

Pia Rakel Sverrisdóttir

Ragnar Hólm Ragnarsson

Ragney Guðbjartsdóttir

Rebekka Kühnis

Rósa Kristín Júlíusdóttir

Rósa Njálsdóttir

Sara Sif Kristinsdóttir

Sigurður Mar

Sólveig Baldursdóttir

Stefán Bessason

Steinn Kristjánsson

Tereza Kocián

Thora Sólveig Bergsteinsdóttir

Vikar Mar

Vikulegt fréttabréf

Fáðu helstu fréttir vikunnar frá Kaffið.is í tölvupósthólfið.

Vinsamlegast bíddu meðan við skráum þig!

Takk fyrir að skrá þig!