SKA skorar á bæjaryfirvöld að setja rekstrar- og þjónustusamning í forgang

Skíðafélag Akureyrar (SKA) hefur sent frá sér ákall til bæjaryfirvalda þar sem þess er krafist að rekstur skíðasvæðisins í Hlíðarfjalli verði falinn sérstöku rekstrarfélagi á vegum SKA. Félagið bendir á að glæsileg uppbygging hjá öðrum stórum íþróttafélögum bæjarins, svo sem Þór, KA, Skautafélaginu og Nökkva, sýni hversu miklu megi áorka þegar íþróttahreyfingin sjálf heldur um stjórnartaumana í nánu samstarfi við bæinn.

Þótt Andrésar andar leikarnir hafi nýlega fagnað 50 ára afmæli með metþátttöku, telur félagið að aðstaðan í fjallinu hafi setið eftir á meðan starfsemin hefur sprungið út. Sami fermetrafjöldi húsakynna tekur enn á móti gestum og þrátt fyrir framfarir í tækni nýtast tækifæri til snjóframleiðslu og landmótunar ekki sem skyldi. Með því að gera formlegan þjónustu- og rekstrarsamning telur SKA að hægt sé að nýta þær 250 milljónir króna sem bærinn veitir svæðinu árlegu á mun markvissari hátt.

SKA hefur nær tvöfaldast að stærð á síðustu árum og skipar sér nú sess sem eitt af fjórum stærstu félögum bæjarins miðað við fjölda iðkenda undir 18 ára aldri. Félagið skorar nú á kjörna fulltrúa og frambjóðendur að setja þennan samning í algjöran forgang þar sem ávinningurinn yrði strax merkjanlegur fyrir gesti. Auk þess að styrkja vetrarþjónustuna gæti slíkt fyrirkomulag opnað á aukna nýtingu svæðisins yfir sumartímann, með bættri þjónustu fyrir hjólafólk og aðra útivistargesti sem vilja njóta útsýnisins í Hlíðarfjalli árið um kring.

Nánar á vef SKA.

Vikulegt fréttabréf

Fáðu helstu fréttir vikunnar frá Kaffið.is í tölvupósthólfið.

Vinsamlegast bíddu meðan við skráum þig!

Takk fyrir að skrá þig!