Í dag klukkan 16:00 verður brúðusöngleikurinn RÓT frumsýndur hjá Leikfélagi Akureyrar. Rót er ljóðræn brúðuleiksýning fyrir alla fjölskylduna eftir leikhópinn Handbendi. Árni og Hreiðar frá Gonzo.creation kíktu í vikunni í heimsókn á æfingar hjá Handbendi í Samkomuhúsinu og afraksturinn má sjá í myndbandinu hér að neðan.
Umfjöllunarefni sýningarinnar er hvernig það er að alast upp milli menningarheima, en móðir Óla er af erlendu bergi brotinn og faðir hans íslenskur. Líf Óla stekkur stakkaskiptum þegar amma hans frá Suður-Ameríku kemur í heimsókn og hann uppgötvar nýjan hluta af sjálfum sér.
Handbendi er margverðlaunað brúðuleikhús með aðsetur í sveitum Norðvesturlands. Leikhúsið sérhæfir sig í frumlegum og áhrifaríkum sýningum fyrir áhorfendur á öllum aldri, sem ferðast víða erlendis og njóta alþjóðlegrar athygli. Handbendi var stofnað árið 2016 af Gretu Clough, margverðlaunuðum leikstjóra, leikara og flytjanda, og hefur síðan fest sig í sessi sem einn frumlegasti sviðslistahópur landsins. Frá fámennri vinnustofu sinni á Hvammstanga rekur leikhúsið fjölbreytta starfsemi allt árið um kring: samfélagsverkefni, alþjóðlega gestavinnustofu fyrir listafólk og Hvammstangi International Puppetry Festival – einu brúðulistahátíð Íslands.
Handbendi hlaut Eyrarrósina árið 2023, viðurkenningu sem er veitt framúrskarandi menningarstarfi í landsbyggðunum.










