Staður og tími
Viðburðurinn Helena og Mávarnir fer fram föstudaginn 15. maí, kl. 13:30, í salnum á hjúkrunarheimilinu Hlíð, Austurbyggð 17, Akureyri. Hann er hluti af viðburðaröð AkureyrarAkademíunnar á þessu ári fyrir íbúa hjúkrunarheimilanna og aðra bæjarbúa. Menningarsjóður Akureyrarbæjar styrkir viðburðina.
Dagskráin
Ófáar dægurperlurnar hefur Helena M. Eyjólfsdóttir (f. 1942) sungið sem hafa greypst inn í hjörtu landsmanna. Ung heillaðist hún af sönglistinni og söng ellefu ára gömul í fyrsta skipti inn á hljómplötu. Eitt leiddi af öðru og árið 1957 var teningnum kastað og söngferillinn hófst fyrir alvöru með hinum ýmsu hljómsveitum. Í sextíu ár, frá árinu 1966, hefur Helena búið á Akureyri og heldur betur lagt lóð sín á vogarskálarnar í tónlistarsögu bæjarins, ekki síst í Hljómsveit Ingimars Eydal í Sjálfstæðishúsinu/Sjallanum.
Í dagskránni mun Óskar Þór Halldórsson fara yfir tónlistarferil Helenu í máli, myndum og með tóndæmum. Ferill Helenu er áhugaverður og fjölbreyttur og tengist órjúfa böndum þróun dægurtónlistar á Íslandi á 20. öld.
Óskar Þór Halldórsson
Óskar Þór Halldórsson (f. 1961) er blaða- og fréttamaður og rithöfundur. Á síðustu árum hefur hann sent frá sér nokkrar bækur, sú nýjasta, Akureyrarveikin, kom út á síðasta ári. Fyrsta bókin sem Óskar Þór sendi frá sér var Gullin ský – ævisaga Helenu M. Eyjólfsdóttur, sem kom út árið 2013.
AkureyrarAkademían
AkureyrarAkademían (AkAk) er rannsókna- og fræðasetur á Akureyri, stofnað árið 2006, og er til húsa í þjónustu- og verslunarmiðstöðinni við Sunnuhlíð 12. AkAk býður einstaklingum upp á vinnuaðstöðu til að sinna sínum hugðarefnum og miðlar þekkingu til samfélagsins með því að standa fyrir fjölbreyttum viðburðum sem hafa það markmið að virkja almenning til þátttöku og stuðla að umræðum. Sérstök áhersla er lögð á að sinna eldri borgurum í bænum en frá árinu 2016 hefur AkAk boðið íbúum hjúkrunarheimilanna upp á fræðandi fyrirlestra um fjölbreytt efni sem eru líka opnir öllum áhugasömum bæjarbúum.







