Leonardo Piccione með höfnina í Grímsey í bakgrunn. Mynd: María H. Tryggvadóttir

Bók tileinkuð Grímsey komin út á Ítalíu

Í apríl kom út á Ítalíu ný bók um Grímsey. Höfundurinn, Leonardo Piccione, hefur dvalið í eyjunni nokkrum sinnum á síðustu fimm árum.  Á meðan á dvöl hans stóð kynntist hann íbúunum, daglegu lífi og hinni einstöku gestrisni þeirra. Hann kynnti sér einnig sögu eyjarinnar, þar á meðal sögu velgjörðarmanns hennar, Willard Fiske. Fjallað er um bókina á vef Grímseyjar.

„Í fyrsta skipti sem ég fór til Grímseyjar var það af forvitni,“ segir Leonardo í samtali við heimasíðu Grímseyjar. „Þar sem ég bjó á Norðurlandi eystra vissi ég af eyjunni og að þar byggi fólk, en hún var samt einhvers konar ráðgáta, kannski ein af síðustu ráðgátum Íslands. Og ég komst fljótt að því að þar var miklu meira að finna en ég hafði gert mér grein fyrir.“

Í bókinni blandar Leonardo saman sögulegum staðreyndum, frásögnum heimamanna, náttúru upplifun og eigin hugleiðingum. Titill hennar, Hvað er hægt að gera á nóttunni við heimskautsbaug, er nokkuð kaldhæðinn: hvað er eiginlega hægt að gera á stað eins og Grímsey? Eins og kemur í ljós— er það miklu meira en ætla mætti.

Bókin er nú fáanleg víða á Ítalíu, bæði í bókabúðum og á netinu, gefin út af Neri Pozza, þekktu ítölsku forlagi. Áform eru um að bókin verði einnig þýdd á fleiri tungumálum. Þetta er fjórða bók Leonardo og sú þriðja um Ísland. Fyrsta bók hans, Bók um íslensk eldfjöll, hefur einnig verið þýdd á spænsku og er aðgengileg á bókasöfnum í Reykjavík, á Akureyri—og að sjálfsögðu í Grímsey.

Nánar er rætt við Leonardo á vef Grímseyjar hér.

Vikulegt fréttabréf

Fáðu helstu fréttir vikunnar frá Kaffið.is í tölvupósthólfið.

Vinsamlegast bíddu meðan við skráum þig!

Takk fyrir að skrá þig!