Ljósmynd: SA

Nýr Zamboni í Skautahöllinni

Á vef SA kemur fram að nýr Zamboni íshefill hafi verið tekinn í notkun í Skautahöllinni í dag og leysir þar með af hólmi þann gamla sem hefur þjónustað félagið í 23 ár. Íshefillinn er af sömu gerð og áður, 552, en með nýrri og betri tæknibúnaði sem skilar enn betri ísgæðum og einfaldari notkun. Þetta er þar með þriðji íshefillinn af þessar gerð sem félagið notar en sá sem var á undan þeim gamla var blár gasknúinn Zamboni sem notaður var hjá félaginu á árunum 1993–2003.

Nýja vélin er sérsmíðuð fyrir félagið í Zamboni verksmiðjunni í Bandaríkjunum og flutt til landsins í gegnum Zamboni Europe í Svíþjóð. Tæknimaður frá fyrirtækinu fylgdi vélinni til landsins, sá um gangsetningu hennar. Svellagerðarmenn félagsins fengu jafnframt kennslu á vélina og nýjan búnað hennar.

„Gamli Zamboni-íshefillinn verður nú settur til hliðar en áfram hafður til vara eftir meira en tveggja áratuga dygga þjónustu við félagið,“ segir á vef SA.

Vikulegt fréttabréf

Fáðu helstu fréttir vikunnar frá Kaffið.is í tölvupósthólfið.

Vinsamlegast bíddu meðan við skráum þig!

Takk fyrir að skrá þig!