Góðar gjafir til Miðgarðakirkju

Ásthildur Sturludóttir bæjarstjóri Akureyrar heimsótti Grímsey í vikunni og færði Miðgarðakirkju kertastjaka eftir leirlistakonuna Margréti Jónsdóttur. Miðgarðakirkja hefur, auk kertastjakanna, notið rausnarlegra gjafa frá einstaklingum, fjölskyldum, félagasamtökum og kirkjusöfnuðum víða af landinu síðan kirkjan var vígð 10. ágúst á síðasta ári eftir að Miðgarðakirkja hin eldri brann til kaldra kola í september 2021. Á vef Grímseyjar er fjallað um þær gjafir sem hafa borist og mikilvægi þeirra fyrir helgihald og daglega starfsemi í kirkjunni:

Meðal góðra gjafa er skírnarfonturinn sem er gjöf frá Valdimar Jóhannssyni gjarnan kenndur við trésmiðjuna Ými á Akureyri. Valdimar skar hann út og afhenti ásamt syni sínum Þengli. Moldunarkerið, sem Grímseyingar kalla „Fósturjarðartrogið“, er gjöf frá Hafnarkirkju í Hornafirði. Ragnar Imsland á Höfn skar trogið út en skálin var smíðuð af Ragnari Péturssyni og Gunnar Pálmi Pétursson sá um sprautulökkun.  

Tvær kirkjuklukkur eru gjöf frá Hallgrímskirkjusöfnuði í Reykjavík. Gjöfin er í þakklætisskyni fyrir klukku sem  Grímseyingurinn Vigfús Friðjónsson gaf Hallgrímskirkju fyrir rúmri hálfri öld og hangir nú í klukknaporti Hallgrímskirkju. Fjórir stórir kirkjustólar eru gjöf frá systkinum frá Sveinagörðum í Grímsey til minningar um foreldra þeirra og tvo bræður sem drukknuðu við eyjuna. Hjörtur Ingason á Sauðárkróki smíðaði stólana. Aðrir stólar í kirkjunni voru keyptir frá Epal, sem veitti höfðinglegan afslátt. Hökull kirkjunnar er gjöf frá Oddi Bjarna Þorkelssyni og Magnúsi Gunnarssyni, prestum safnaðarins. 

Orgelið og orgelstóllinn gaf Vala Tryggvadóttur á Akureyri í minningu Sigurlaugar Björnsdóttur frá Siglufirði. Hljóðkerfið var gefið af Kiwanisklúbbunum á Óðinssvæði á Norðurlandi. Gylltir kertastjakar eru úr Kirkjuhúsinu og voru gefnir af Sveinbjörgu Rósu Sumarliðadóttur. 

Tvær Guðbrandsbiblíur prýða kirkjuna. Önnur er gjöf frá Kolbeini Arasyni og Hrafnhildi Hallgrímsdóttur, en hin frá Unni Kristinsdóttur, ekkju Orra Vigfússonar. Tveir blómavasar voru gefnir af Sigrúnu Þorláksdóttur og Gylfa Gunnarssyni til minningar um son þeirra, Konráð, sem lést af slysförum í Grímsey. 

Fánastöngin var gefin af Sveinsstaðafjölskyldunni til minningar um Ellu og Óla á Sveinsstöðum og son þeirra, Þorleif, sem einnig lést af slysförum í eyjunni. 

Hellur í stétt við kirkjuna voru gefnar af BM Vallá.  

Einnig hafa fjölmargir einstaklingar, félagasamtök og aðrar kirkjur stutt við Miðgarðakirkju með veglegum peningagjöfum og er söfnuðurinn í Grímsey einlæglega þakklátur fyrir allan þann stuðning sem kirkjan hefur notið. 

Vikulegt fréttabréf

Fáðu helstu fréttir vikunnar frá Kaffið.is í tölvupósthólfið.

Vinsamlegast bíddu meðan við skráum þig!

Takk fyrir að skrá þig!