Keppt verður í skíðaskotfimi á Andrésar Andarleikunum í ár á 50 ára afmælisári leikanna. Skíðaskotfimi er ört vaxandi grein á alþjóða skíðasviðinu sem nýtur mikilla vinsælda. Nú á 50 ára afmælisári er skíðaskotfimi í fyrsta sinn keppnisgrein á Andrésarleikunum. „Við erum spennt fyrir að víkka út skíðaíþróttina innan leikanna og prófa nýja grein,“ segir í tilkynningu.
Skíðaskotfimi var kynnt til leiks á leikunum 2025 þar sem allir sem vildu fengu að prófa að skjóta með laser riffli á þar til gerð skotmörk. 54 keppendur eru skráðir til leiks í ár og keppt verður fimmtudaginn 23. apríl á skíðagöngusvæðinu í Hlíðarfjalli og hefst keppni kl 14:30.
Keppt verður í flokkum 11 ára, 12-13 ára og 14-15 ára og skotið með laser rifflum á þar til gerð skotmörk. Nánari upplýsingar um fyrirkomulag keppninnar má sjá í fararstjóra handbók á heimasíðu Skíðafélags Akureyrar, skidi.is.
Frekari upplýsingar um 50. Andrésar Andarleikanna má finna hér.










