Ný styttist óðum í sveitarstjórnarkosningar, en þær fara fram laugardaginn 16. Maí næstkomandi. Akureyringar munu þá kjósa sér nýja bæjarstjórn og geta valið milli átta framboðslista. Til þess að hjálpa lesendum að gera upp hug sinn hefur Kaffið sent út stuttan spurningalista á oddvita allra framboða í sveitarfélaginu. Svör þeirra verða birt í oddvitaspjöllum sem þessu á næstu dögum og vikum.
Oddvitaspjallið að þessu sinni er við Óðinn Svan Óðinsson, oddvita L-listans á Akureyri.
Hver eru helstu stefnumál þíns framboðs fyrir komandi kosningar?
Við viljum halda áfram að byggja upp frábæra bæinn okkar og tryggja að Akureyri verði áfram staður sem ungt fólk velur til að setjast að. Við höfum tekið stór skref síðustu ár, t.d. í leikskólamálum og uppbyggingu íþróttamannvirkja, og við þurfum að halda okkur við efnið og gera enn betur. Við þurfum að klára þau verkefni sem þegar eru í vinnslu og búið er að ákveða að framkvæma og gera þau almennilega. Við þurfum líka að passa upp á eldri borgara því það er fólkið sem byggði upp þau lífsgæði sem við lifum við í dag. Þetta er aðeins brot af því sem við viljum beita okkur fyrir en alla stefnuskrá okkar má finna á vefnum L-listinn.is
Er eitthvað við bæinn okkar sem þér finnst ganga sérstaklega vel eins og staðan er í dag og þú vilt standa sérstakan vörð um?
Bærinn okkar hefur verið að vaxa hratt á síðustu árum og uppbygging ekki verið eins mikil í áratugi. Við höfum séð mikla uppbyggingu og endurbætur í grunnskólum og tökum í gagnið nýjan og glæsilegan leikskóla í haust sem við getum verið stolt af.
Á hinn bóginn, er eitthvað við bæinn okkar sem þér finnst ekki ganga nógu vel eins og staðan er í dag og þú vilt kippa í lag?
Með stækkandi bæ þarf strætókerfið að eflast með tíðari ferðum og bættu leiðarkerfi sem nær í hverfi sem hafa stóra vinnustaði. Við þurfum líka að passa að ríkið standi við gefin loforð um uppbyggingu hjúkrunarheimila. Það má ekki bíða.
Nú eru fyrstu sveitarstjórnarkosningar síðan Akureyri var formlega skilgreind sem svæðisborg síðasta haust. Hvað þarf að þínu mati að gera til þess að styðja við borgarhlutverkið?
Við þurfum að vinna áfram með ríkinu að aðgerðum sem styðja við svæðisborgarhlutverkið. Til að standa undir því hlutverki þarf líka að fylgja fjármagn. Í þessu samhengi er t.d. mikilvægt að passa Akureyrarflugvöll sem þarf að tryggja að verði önnur gátt inn í landið og flugstöð stækkuð í samræmi við það.
Hvernig finnst þér Akureyrarbær standa sig í málefnum Hríseyjar og Grímseyjar? Er eitthvað sem þú og þitt framboð viljið gera öðruvísi?
Við sem kjörnir fulltrúar megum ekki gleyma neinum hverfum í bænum. Hvort sem hverfin heita Síðuhverfi, Hagahverfi, Hrísey eða Grímsey. Við þurfum að halda uppi hagsmunagæslu fyrir eyjarnar okkar og passa að ferjusiglingar verði ekki skertar. Því þær eru lífæðar samfélaganna þar.
Ein létt að lokum, hvernig tekurðu kaffið þitt?
Ég er búinn að reyna að drekka kaffi í tæp 30 ár án árangurs. Mér finnst kaffijógúrt samt ágæt, er það ekki eitthvað?








