Húsnæði BSO fæst gefins ef sótt

Húsið sem hefur hýst rekstur Bifreiðastöðvar Oddeyrar í um 70 ár hefur verið auglýst til flutnings. Auglýsingin birtist á heimasíðu Akureyrarbæjar fyrr í dag. Húsið var byggt árið 1956 og er 70 m² að viðbyggingum meðtöldum.

Í auglýsingunni segir að húsnæðið sé afhent án endurgjalds en að flutningur hússins verði á ábyrgð og kostnað þess sem verður fyrir valinu. Umsækjendur þurfa að greina frá því hvað húsnæðið yrði notað fyrir, hvort það yrði nýtt til almenningsnota og hvar það yrði staðsett. Sá sem fær húsnæðið þarf að sjá til þess að það verði farið úr Strandgötunni ekki einna en 15. júní næstkomandi, annars verður það rifið og því fargað.

Tilkynningin hljóðar svona:

Um er að ræða húsnæði sem hefur hýst rekstur Bifreiðastöðvar Oddeyrar í um 70 ár, stærð húsnæðis er 70 m² og var byggt árið 1956 ásamt viðbyggingum. 

Húsnæðið er afhent án endurgjalds en flutningur hússins er á ábyrgð og kostnað þess sem valin er.

Allar nánari upplýsingar eru gefnar í gegnum netfangið umsarekstur@akureyri.is.

Bjóðandi skal skila inn upplýsingum rafrænt á sama netfang eigi síðar en kl. 11:00 fimmtudaginn 21. maí 2026. Fram þarf að koma hvað húsnæðið yrði notað fyrir, hvort húsnæðið yrði nýtt til almenningsnota og hvar húsnæðið yrði staðsett.

Bjóðendum verðu kynnt niðurstaðan eftir að mat tilboða liggur fyrir.

Húsnæðið verður afhent í því ástandi sem það er í og er það á ábyrgð bjóðanda að kynna sér aðstæður húsnæðis áður en tilboð er gert.

Húsnæðið þarf að vera farið úr Strandgötu eigi síðar en 15. júní 2026 að öðrum kosti verður húsnæðið  rifið og því fargað.

Við mat á tilboðum er horft til þess hvort húsnæðið verði nýtt til almenningsnota (80%) og fyrirhugaðrar staðsetningar (lóðar) (20%).

Vikulegt fréttabréf

Fáðu helstu fréttir vikunnar frá Kaffið.is í tölvupósthólfið.

Vinsamlegast bíddu meðan við skráum þig!

Takk fyrir að skrá þig!