61 myndlistamenn sýna í Hofi

Sýning á verkum sextíu og eins félaga í Myndlistarfélaginu á Akureyri hefur opnar 9. maí í Hofi. Sýningin veitir innsýn í fjölbreyttan myndheim listamanna sem starfa á Norðurlandi og endurspeglar þá grósku sem einkennt hefur myndlistarlífið á svæðinu á undanförnum árum. Viðfangsefni listamannanna eru margvísleg og sýna ólík tjáningarform nútímamyndlistar þar sem tekist er á við tilveruna með persónulegum og margslungnum hætti.

Myndlistarfélagið á Akureyri er eitt af aðildarfélögum Sambands íslenskra myndlistarmanna sem stofnað var í janúar 2008. Innan félagsins eru nú ríflega eitt hundrað meðlimir. Þótt meirihluti félagsmanna sé búsettur á Akureyri eða í nágrenni er félagið opið öllum myndlistarmönnum óháð búsetu. Auk þess að halda úti sýningum á borð við þá sem nú stendur yfir í Hofi, rekur félagið sýningarsalinn Mjólkurbúðina í Listagilinu þar sem boðið er upp á fjölbreyttar sýningar bæði innlendra og erlendra listamanna.

Þetta er í fjórða sinn sem Myndlistarfélagið setur upp sýningu í Hofi og þykir sýningin gefa glögga mynd af þeim fjölbreytta hópi listamanna sem myndar félagið og þeim ólíku straumum sem ríkja í myndlist nútímans.

Vikulegt fréttabréf

Fáðu helstu fréttir vikunnar frá Kaffið.is í tölvupósthólfið.

Vinsamlegast bíddu meðan við skráum þig!

Takk fyrir að skrá þig!