Bjarni og Sólveig best

Lokahóf handknattleiksdeildar KA og KA/Þór fór fram á Akureyri í gærkvöldi þar sem karlalið KA og kvennalið KA/Þórs fögnuðu flottum vetri. Bjarni Ófeigur Valdimarsson og Sólveig Lára Kristjánsdóttir voru kjörin bestu leikmenn liðanna.

„Bjarni átti stórkostlegan vetur í gula og bláa búningnum en hann var í vetur valinn besti leikmaður Olísdeildarinnar en hann var næstmarkahæsti leikmaður deildarinnar og sá stoðsendingahæsti. Sólveig Lára sýndi enn og aftur hve magnaður íþróttamaður hún er en hún er algjör lykilmaður í sterkum varnarleik KA/Þórs og í vetur gerði hún enn betur því hún lék einnig stærra hlutverk í sóknarleik liðsins og dreif liðsfélaga sína áfram,“ segir um þau í umfjöllun á vef KA.

Jens Bragi Bergþórsson og Bergrós Ásta Guðmundsdóttir voru valin efnilegustu leikmenn liðanna. Haraldur Bolli Heimisson og Anna Þyrí Halldórsdóttir voru valin bestu liðsfélagarnir. Einar Rafn Eiðsson, Dagur Gautason og Sólveig Lára Kristjánsdóttir spiluðu sinn 100. leik fyrir KA eða KA/Þór í vetur og voru þau heiðruð fyrir. Þá var Einar Birgir Stefánsson heiðraður fyrir að leika sinn 200. leik. Einar Rafn Eiðsson og Unnur Ómarsdóttir voru þá kvödd með þökkum eftir fimm ára veru fyrir hjá liðunum.

Ítarlega umfjöllun um lokahófið má finna á vef KA með því að smella hér.



Vikulegt fréttabréf

Fáðu helstu fréttir vikunnar frá Kaffið.is í tölvupósthólfið.

Vinsamlegast bíddu meðan við skráum þig!

Takk fyrir að skrá þig!