Sævar Pétursson framkvæmdarstjóri KA býður Kristján Sturluson velkominn til starfa. Mynd: KA.is

Kristján Sturluson ráðinn íþróttastjóri KA

Kristján Sturluson hefur verið ráðinn íþróttastjóri KA og hefur nú þegar hafið störf. Þetta kemur fram í tilkynningu á vef KA. Þar segir: „Kristján býr yfir víðtækri reynslu úr atvinnulífi og íþróttastarfi en hann hefur starfað sem sérfræðingur hjá Gallup, verkefnastjóri hjá SÍMEY og síðastliðið ár sem svæðisfulltrúi hjá Svæðisstöð íþróttahéraða á Norðurlandi eystra.“

Kristján hefur um árabil verið virkur í starfi KA, hann hefur setið í foreldraráði og yngriflokkaráði knattspyrnudeildar og verið öflugur sjálfboðaliði, meðal annars í grillhöll KA á heimaleikjum meistaraflokks karla í knattspyrnu. Þá situr Kristján í stjórn hokkídeildar Skautafélags Akureyrar og hefur víðtæka reynslu úr íshokkíhreyfingunni. Hann hefur meðal annars sinnt hlutverki liðsstjóra með yngri landsliðum Íslands undanfarin ár og fór í apríl með A-landsliði karla á HM í Búlgaríu. Kristján er með BA-gráðu í sálfræði, kennsluréttindi og diplómu í jákvæðri sálfræði.

Kristján tekur við starfinu af Siguróla Magna Sigurðssyni sem lét af starfi íþrjóttastjóra KA fyrr á árinu.

Nánar á vef KA.

Vikulegt fréttabréf

Fáðu helstu fréttir vikunnar frá Kaffið.is í tölvupósthólfið.

Vinsamlegast bíddu meðan við skráum þig!

Takk fyrir að skrá þig!