Veitingahúsið og kaffihúsið LYST í Lystigarðinum á Akureyri hefur skipað sér fastan sess í veitingalífi bæjarins og staðurinn er rómaður fyrir létta og ljúffenga hádegisrétti. Nú ætlar LYST að herða sóknina og þann 14. maí næstkomandi verður kvöldverðarstaðurinn Dinner á LYST opnaður fyrir gesti og gangandi. Með þessari viðbót er markmiðið að bjóða upp á heildstæða matarupplifun frá morgni til kvölds.
Reynir Gretarsson, eigandi LYST, ræddi við Kaffið.is um nýja kvöldverðarhluta staðarins.
Klassísk kvöldverðarupplifun á sanngjörnu verði
„Við setjum upp sérstakan kvöldverðarseðil, ekki stóran, en vandaðan og skemmtilegan. Hingað til höfum við verið meira fókus á hádegið, sem hefur gengið mjög vel. Þar er matseðillinn meira í léttari kantinum, súrdeigsbrauð, kaffi, snöggur biti og auðvitað fiskur & grænmeti, fiskisúpa og fleira úr fyrsta flokks hráefni. Á kvöldin verður þetta aðeins öðruvísi. Við hvetjum fólk til að koma í þrjá rétti og markmiðið er að halda verðinu sanngjörnu svo það sé auðvelt að gera úr þessu heila kvöldstund.“
Hugmyndin um að bjóða upp á kvöldverð á LYST hefur lengi verið til staðar, en Reynir segir sterkt teymi lykilatriði þegar kemur að því að hrinda slíkum hugmyndum í framkvæmd.
„Húsið í Lystigarðinum býður upp á að gera eitthvað meira á kvöldin, en við vildum ekki fara of hratt af stað í byrjun. Þegar við gátum fengið Rafn Svansson inn í Dinner á LYST, þá small þetta bara saman. En þetta gengur auðvitað ekki nema með góðu fólki og við erum heppin með teymið okkar. Tryggvi Þór Traustason sem hefur séð um allan mat á LYST síðustu ár verður ennþá og ekkert mun breytast í hádegismatnum hjá okkur. Engin þarf að að vera stressaður að fiskur og grænmeti hverfi úr hádeginu eða súrdeigsbrauðin okkar.“
Undirbúningur gengur vel þótt það séu alltaf einhverjar áskoranir
„Eldhúsið okkar er ekki stórt og við erum að keyra morgunmat, kaffi, hádegismat, happy hour og núna kvöldverð líka. Það þýðir að við þurfum að vera mjög skipulögð og nýta plássið vel. Þetta snýst mikið um að láta hlutina ganga upp í flæði frekar en að bæta bara við meira.“
Einfaldur og árstíðabundinn matseðill
Matseðillinn sem verður í boði á Dinner á LYST er settur saman af Rafni Svanssyni og er blanda af evrópskri og skandinavískri nálgun, en fyrst og fremst bara góður matur.
„Við reynum eftir fremsta megni að vinna með hráefni úr nágrenninu og leggjum áherslu á skýra, hreina nálgun þar sem hráefnið er í aðalhlutverki. Nöfnin á réttunum segja lítið meira en aðalhráefnið, það gefur okkur svigrúm til að breyta og þróa réttina reglulega eftir því sem hráefnið breytist. Þannig verður alltaf eitthvað nýtt í gangi.“
Uppsetningin er í raun einföld, segir Reynir. „Þrír forréttir – kjöt, fiskur og grænmeti; fjórir aðalréttir – kjöt, fiskur, grænmeti og pasta; þrír eftirréttir – súkkulaði, ostur og ber.“
Einnig verður hægt að panta af litlum matseðli „minni mat,“ sem er tilvalið fyrir þá sem vilja kíkja í vínglas og góða stemningu.
Byrjuð að taka við bókunum á LYST.is
Dinner á LYST opnar 14. maí og það verður opið fimmtudaga til laugardaga til að byrja með. LYST verður áfram opið alla daga allan daginn eins og síðustu ár.
Aðspurður um stemninguna á LYST segir Reynir í lokin: „Við viljum skapa upplifun sem sameinar góðan mat, fallegt umhverfi og góða stemningu. LYST á að vera staður þar sem fólk hittist, líður vel og vill koma aftur. Þetta á að vera gaman.“










