Miðvikudaginn 22. apríl fór Hæfileikakeppni Akureyrar fram. Þar stigu hæfileikarík ungmenni á svið og sýndu listir sínar. Alls tóku 34 krakkar þátt með 13 atriðum. Sigurvegari kvöldsins var Natalie Lea Gunnarsdóttir sem heillaði áhorfendur og dómnefnd með flutningi sínum á laginu Skinny eftir íslensku hljómsveitina Kaleo. Fjallað er um viðburðinn á vef Akureyrarbæjar.
Í öðru sæti lenti danshópurinn Síðugengið, skipaður þeim Aþenu Vigdísi, Anítu Þórunni, Karólínu Hönnu, Vilborgu Hörpu og Telmu Dögg, en í þriðja sæti var Adam sem söng lagið Riptide með Vance Joy.
Dómnefnd skipuðu Tinna Óðins, Villi vandræðaskáld og Björn Grétar grínisti. Á meðan þau fóru yfir úrslitin fengu áhorfendur skemmtilega skemmtiatriði frá nemendum úr Lundarskóla.
Hæfileikakeppni Akureyrar er fastur liður í Barnamenningarhátíð bæjarins og hefur um árabil verið vinsæll vettvangur fyrir skapandi ungmenni. Keppnin er ætluð nemendum í 5.–10. bekk og þar fær fjölbreytnin að njóta sín. Markmið keppninnar er að efla sjálfstraust og styðja við styrkleika barna og ungmenna, auk þess að skapa vettvang þar sem þau geta komið fram, prófað sig áfram og notið sín í skapandi umhverfi.










