Show Guilt gefa út nýtt lag

Hljómsveitin Show Guilt gaf út sitt þriðja lag föstudaginn 1. maí síðastliðinn. Lagið, sem ber titilinn Anguish er hluti af væntanlegri breiðskífu hljómsveitarinnar. Show Guilt er nýleg fimm manna harðkjarnahljómsveit frá Akureyri. Tónlist þeirra einkennist af hráu, þungu og harkalegu andrúmslofti og fylgir ómæld orka framkomu þeirra á sviði. 

Bandið hefur verið starfandi síðan sumarið 2025 og hefur komið fram á Norður- og Suðurlandi, á Hellfoss metal-hátíðinni á Selfossi og var ein af sjö hljómsveitum sem tóku þátt í Wacken Metal Battle keppninni í Iðnó, 25. apríl síðastliðinn.

„Tónlistin er samin með það að leiðarljósi að hún sé þung og aggressív en á sama tíma innihaldsrík – hún þarf að hafa einhverja þýðingu og tilgang. Textarnir eru útrás fyrir alvarleg viðfangsefni sem getur verið erfitt að horfast í augu við, eins konar þerapía, og fjalla um allt frá pólitísku óréttlæti og andlegu ofbeldi til sjálfsvígs vinar. Fyrst og fremst er þetta andleg og líkamleg útrás fyrir sköpunarþörf, hugsanir, tilfinningar og orku, eða það sem nefnist catharsis,“ segir í tilkynningu frá sveitinni.

Verkefnið er hugarfóstur Guðbjörns Hólm Veigarssonar sem kviknaði þegar hann og Þorvaldur Yngvi Schiöth, Þorri,tóku höndum saman til að gera harðkjarna músík fyrir um tveimur árum. Þeir þekktust vel úr metalsenunni frá árum áður og eftir fyrstu æfingu urðu lögin fljótlega til. Guðbjörn sér um laga- og textasmíðina og Þorri semur og útfærir trommur.

Um tíma voru þeir aðeins tveir en svo bættist Daníel Andri Eggertsson við á gítar. Hann hefur verið iðinn í tónlistarlífinu hér fyrir norðan og tekið þátt í ýmsum árangursríkum verkefnum, þó þau hafi samt flest verið ansi fjarri stefnu Show Guilt. Helst ber þar að nefna verkefnið Villi&Dandri, ballbandið Færibandið og svo hinn unga og efnilega Atla.

Eftir að Þorvaldur og Guðbjörn sáu svo Daniel Alpi á sviði með annarri hljómsveit, og fundu gríðarlegu orkuna sem hann gefur frá sér á tónleikum, voru þeir sammála um að hann yrði að vera með. Fjórði meðlimurinn bættist því við á annan gítar og bakraddir. Þess má geta að hann er að gera garðinn frægan í deathmetal senunni með vinum okkar í Devine Defilement um þessar mundir. Þá vantaði bara bassaleikara og einhvern veginn kom Stefán Oddur Hranfsson eins og kallaður. Besti vinur Guðbjörns kannaðist við bassaleikara í svipaðri stefnu og bandið og eftir fyrstu æfingu smellpassaði hann inn. Kraftmikill bassafantur með grjótharða sviðsframkomu og hausinn á réttum stað.

Fyrsta tækifæri hljómsveitarinnar til að koma fram var á Mannfólkið Breytist í Slím, síðasta sumar, við góðar undirtektir. Síðan þá hafa þeir komið fram á Dillon með Devine Defilement, á metalhátíðinni Hellfossi og héldu sjálfir tónleika í apríl ásamt akureyrsku sveitunum Sólför og Leður á Leyni, nýja barnum hans Vikar Mars. 

Show Guilt voru líka ein af sjö hljómsveitum sem kepptu á Wacken Metal Battle Iceland í Iðnó þann 25. apríl sl. Þess má geta að Hellfoss, tónleikarnir á Leyni og Wacken seldust upp svo grasrótin og metallinn virðist lifa góðu lífi hér á landi. Þrjú bönd frá Akureyri kepptu á Wacken og voru það akureyrsku drengirnir í SÓT sem báru sigur úr býtum. Vel að þessu komnir, ungir og efnilegir með framtíðina fyrir sér.

„Það hefur mikið verið góðum vinum okkar að þakka hvað þetta verkefni hefur gengið vel. Fyrst og fremst ber að nefna Ágúst Örn Pálsson, hljóð- og tæknimann, sem hefur sinnt öllum okkar tæknimálum af krafti, séð um að allt sé klárt fyrir tónleika, hjálpað mikið til við upptökur og svo ótalmargt fleira. Við eigum honum mikið að þakka. Þá hefur Árni F. líka veitt okkur góða hjálparhönd í þeim efnum. Alexander Örn Hlynsson á svo miklar þakkir skilið því hann hefur séð um hljóðblöndun og eftirvinnslu fyrstu tveggja laga okkar og leyst annan gítarleikarann okkar af á Leyni. Þá fengum við hinn hæfileikaríka og reynda Heiðar Brynjarsson til að leysa af á trommum fyrir okkur í desember, sem við erum mjög þakklátir fyrir. Brynjar Gauti Schiöth á svo líka þakkir skilið fyrir myndbandsupptökur og aðra aðstoð sína, auk alls hins fólksins í kringum okkur. Við erum mjög heppnir með þetta fólk,“ segir í tilkynningu sveitarinnar.

„Show Guilt byrjaði því smátt, sem lítið tveggja manna verkefni, en hefur á stuttum tíma breitt úr sér og tekið utan um fjöldann allan af frábæru fólki. Svo ekki sé talað um það einstaka fólk sem mætir á tónleika, styður okkur og tekur þátt í útrásinni. Þetta er með heilbrigðari leiðum til að losa um tilfinningar og uppsafnaða spennu hversdagsleikans. Það kom okkur eiginlega á óvart hvað þetta sprakk út enda snerist þetta verkefni fyrst og fremst bara að koma saman og skapa. Að ná saman fimm fullorðnum mönnum einu sinni í viku, þar af þremur fjölskyldufeðrum, er ekki alltaf auðvelt en gengur samt sem áður einhvern veginn. Það virðist hafa verið þörf fyrir þessa tegund tónlistar í samfélaginu enda höfum við hlotið dágóðan meðbyr.“

Vert er að ítreka að splunkunýtt lag kom út á föstudaginn í síðustu viku sem ber heitið Anguish. Leifur Örn Kaldal sá um hljóðblöndun og eftirvinnslu. Næst koma Show Guilt fram á tónleikahátíðinni Grasrót þann 30. maí, á Akureyri.

Sveitina skipa (frá vinstri til hægri):

Daniel Alpi: Gítar og bakraddir

Þorvaldur Yngvi Schiöth: Trommur og meðhöfundur

Guðbjörn Hólm Veigarsson: Söngur, laga- og textahöfundur

Stefán Oddur Hrafnsson: Bassi

Daníel Andri Eggertsson: Gítar

Vikulegt fréttabréf

Fáðu helstu fréttir vikunnar frá Kaffið.is í tölvupósthólfið.

Vinsamlegast bíddu meðan við skráum þig!

Takk fyrir að skrá þig!