Meryl Streep og FKA Norðurland sameinast í dúndurstemmingu

FKA, félag kvenna í atvinnulífinu, á Norðurlandi og Sambíóin sameina krafta sína fyrir frumsýningu af kvikmyndinni Devil Wears Prada 2 á Akureyri. Myndin er sýnd 30. Apríl og FKA Norðurland ætlar að bjóða öllum félagskonum og vinkonum í sérstakt frumsýningarpartý sem verður haldið í húsakynnum Akureyri Whale Watching.

Félagskonur verða með kynningar en í félaginu yfir 60 metnaðarfullar konur, margar hverjar í eigin rekstri. Kvikmyndin fjallar um viðskiptakonuna Miranda Priestly sem leikin er af Meryl Streep. Hún reynir að halda starfsferli sínum á floti á sama tíma og hefðbundin tímaritaútgáfa er í hnignun. Hún tekst á við Emily Charlton, fyrrverandi aðstoðarkonu sína, sem er nú háttsettur stjórnandi hjá lúxusvörufyrirtæki með auglýsingafé sem Priestly þarfnast sárlega.

„Við ætlum að sameinast hópur af Meryl Streep aðdáendum og hafa gaman, nýta töfra tengslanetsins og njóta góðra veitinga,“ segir í tilkynningu frá stjórn FKA á Norðurlandi.

Félag kvenna í atvinnulífinu er starfandi um allt land með um 1500 félagskonum. Nú styttist í aðalfund FKA Norðurland þar sem laus eru sæti í stjórn og vill stjórn FKA hvetja konur til að rétta upp hönd og gefa kost á sér. Hægt er að skrá sig í félagið hvenær sem er, frekari fyrirspurnir má senda á fkanordurland@fka.is

Vikulegt fréttabréf

Fáðu helstu fréttir vikunnar frá Kaffið.is í tölvupósthólfið.

Vinsamlegast bíddu meðan við skráum þig!

Takk fyrir að skrá þig!