Ályktun frá aðalfundi Kvennasambands Eyjafjarðar 2. maí 2026, haldinn á Ólafsfirði.
Kvennasamband Eyjafjarðar, KSE, lýsir yfir þungum áhyggjum af þeirri alvarlegu stöðu sem upp er komin á Kristnesspítala vegna skorts á nauðsynlegu viðhaldi og úrbótum um áraraðir.
Endurhæfingadeildin á Kristnesspítala gegnir lykilhlutverki í heilbrigðisþjónustu fyrir íbúa Norðurlands og víðar. Þar fer fram mikilvæg þjónusta við einstaklinga sem þurfa á sérhæfðri endurhæfingu að halda eftir veikindi, slys eða skurðaðgerðir. Núverandi ástand húsnæðis og skortur á viðhaldi ógnar þessari starfsemi með alvarlegum hætti.
Sambandið telur brýnt að gripið verði tafarlaust til aðgerða til að tryggja öruggt og viðunandi umhverfi fyrir sjúklinga og starfsfólk. Ástandið er ekki einungis spurning um aðbúnað heldur einnig um öryggi, gæði þjónustu og virðingu fyrir þeim fjölmörgu sem treysta á þessa mikilvægu heilbrigðisþjónustu eins og starfsfólk, sjúklinga og aðstandendur þeirra.
Kvennasamband Eyjafjarðar skorar á heilbrigðisyfirvöld og stjórnvöld að bregðast án tafar við og tryggja fjármagn til nauðsynlegs viðhalds og uppbyggingar svo ekki þurfi að draga úr eða leggja niður starfsemi sem er samfélaginu svo mikilvæg.










