Á vef sínum kynnti Dalvíkurbyggð tillögur að nýrri 1.052 fermetra björgunarmiðstöð við Ólafsfjarðarveg sem hýsa mun slökkvilið, lögreglu og sjúkraflutninga. Byggingin skiptist í 712 fermetra tækjasal úr stálgrind og 340 fermetra mannvistarhluta úr steinsteypu með vinnurýmum og starfsmannaaðstöðu.
Stöðin verður staðsett suðaustan við fótboltavöllinn við Ásgarð og er hönnuð til að bæta viðbragðstíma og efla öryggisinnviði sveitarfélagsins með því að sameina alla viðbragðsaðila undir einu þaki.
Auglýsing - Vilt þú auglýsa hér?











