Baldvin Þór Magnússon stóð uppi sem sigurvegari í karlaflokki þegar fyrsta Íslandsmeistaramótið í götumílu fór fram á Kvartmílubrautinni í Hafnarfirði í gærkvöldi.
Baldvin hljóp mílu á 4 mínútum og 21 sekúndu í erfiðum aðstæðum og vann með yfirburðum en mjög litlu munaði hjá næstu mönnum á eftir honum. Jökull Bjarkason og Eyfirðingurinn Fjölnir Brynjarsson urðu í 2. og 3. sæti, báðir á tímanum 4:31.
Auglýsing - Vilt þú auglýsa hér?
Keppnin bar heitið Vecct Mílan og var í beinni útsendingu á Vísi þar sem má finna nánari umfjöllun.










