Klettur flytur í nýtt og stærra húsnæði á Akureyri

Klettur hefur undirritað leigusamning við G. Hjálmarsson um nýja þjónustumiðstöð að Goðanesi 2 á Akureyri. Um er að ræða 1.340 fermetra húsnæði á góðum stað, sem mun marka stórt skref í uppbyggingu félagsins á Norðurlandi.

Klettur er umboðsaðili á Íslandi fyrir leiðandi vörumerki í tækjum og búnaði, svo sem Caterpillar vinnuvélar, Scania atvinnubifreiðar og Ingersoll Rand loftpressur ásamt því að reka framúrskarandi viðgerðarþjónustu og varahlutasölu fyrir vinnuvélar og atvinnubifreiðar. Klettur er leiðandi í sölu og þjónustu á hjólbörðum en meðal birgja eru Goodyear, Hankook og Nexen.

„Við erum að stækka við okkur á Akureyri og flytja í stærra og hentugra húsnæði þar sem allar aðstæður eru til fyrirmyndar og hentar betur ört vaxtandi umsvifum Kletts. Við höfum hingað til verið staðsett að Hjalteyrargötu, en tíminn er kominn til að stíga næsta skref í uppbyggingu félagsins,“ segir Sigurjón Örn Ólafsson, framkvæmdastjóri Þjónustusviðs Kletts, í samtali við Kaffið.is.

„Starfsemi Kletts hefur vaxið jafnt og þétt undanfarin ár og þörf var fyrir stærra og betra húsnæði sem rúmar starfsemi okkar betur. Nýja staðsetningin gefur okkur svigrúm til að þjóna viðskiptavinum okkar betur, bæði hvað varðar þjónustu og afkastagetu. Við viljum einnig geta boðið starfsfólki okkar sem bestar vinnuaðstæður. Nýja húsnæðið mun gera okkur kleift að auka afkastagetu okkar og auka þjónustustigið enn frekar. Við sjáum fram á að þurfa að fjölga starfsfólki til að mæta þeirri auknu eftirspurn sem við horfum fram á á Norðurland. Þetta er spennandi skref í þróun Kletts á Norðurlandi,“ segir Sigurjón.

Hann segir starfsemi Kletts á Akureyri ganga mjög vel. „Við höfum byggt upp trausta og langa viðskiptasögu á Norðurlandi og eftirspurnin eftir þjónustu okkar hefur vaxið stöðugt. Það er einmitt sú þróun sem knýr okkur til að fjárfesta í þessari stækkun á aðstöðu okkar og búa okkur betur undir framtíðina.“

„Við bjóðum upp  fjölmörg þekkt vörumerki en helst ber að nefna Scania vörubíla og Caterpillar vinnuvélar sem eru meðal þekktustu og áreiðanlegustu vörumerkja í heiminum á sínum sviðum. Samhliða sölustarfseminni leggjum við mikla áherslu á að veita framúrskarandi þjónustu og bjóða upp á víðtækt úrval varahluta fyrir bíla og tæki í þessum geira. Við viljum vera traustur langtíma samstarfsaðili viðskiptavina okkar.“

Hjá Kletti starfa um 150 starfsmenn. Félagið er hluti af samstæðu Styrkás hf. sem er leiðandi þjónustufyrirtæki á fyrirtækjamarkaði með styrk til að þjónusta innviða- og atvinnuvegafjárfestingu á Íslandi. Starfsemi Styrkás byggir á fjórum kjarnasviðum: orku og efnavöru, tækjum og búnaði, eignaumsýslu og leigustarfsemi og umhverfis- og iðnaðarþjónustu. Dótturfélög Styrkás eru Skeljungur, Klettur, Stólpi og Hreinsitækni, sem saman mynda samstæðu félagsins. . Eitt af markmiðunum er að auka samstarf og samnýtingu með systurfélögum samstæðunnar með tímanum. 

Vikulegt fréttabréf

Fáðu helstu fréttir vikunnar frá Kaffið.is í tölvupósthólfið.

Vinsamlegast bíddu meðan við skráum þig!

Takk fyrir að skrá þig!