www.danielstarrason.com

Sólför gefur út nýtt lag

Í dag kom út þriðja lag hljómsveitarinnar Sólför. Eins og á fyrstu tveimur lögunum er um nostalgíu-rokk að ræða, en að þessu sinni má finna fyrir meiri blús áhrifum. Aðdáendur hljómsveita á borð við Whitesnake og Deep Purple munu eflaust geta dillað höfðinu við lagið.

„Við höldum áfram ótrauðir að vinna í plötunni, sem er væntanleg á þessu ári. Þetta er nýr kafli í henni. Þetta verður ekki beint “concept” plata en ég viðurkenni að ég er mikill nördi og ég elska að segja sögur og búa til heima í textagerð minn. Textarnir eru dyrnar inn í þann hugarheim, fyrir þau sem vilja kafa dýpra,“ segir Ívan Mendez, söngvari hljómsveitarinnar.

Strákarnir eru á leiðinni suður um helgina að keppa á ‘Wacken Metal Battle’ sem er árleg hljómsveitakeppni þar sem bönd keppast um að spila á Wacken Open Air, stærstu rokk- og metal hátíð í Evrópu.

Lagið er að mestu hljóðritað og unnið í Stúdíói Hljómbræðra, en trommur eru teknar upp í Hljóðveri Tónlistarskólans í Hofi.

Lagið Streets Of Babylon er nú streymanlegt á öllum helstu veitum.


Vikulegt fréttabréf

Fáðu helstu fréttir vikunnar frá Kaffið.is í tölvupósthólfið.

Vinsamlegast bíddu meðan við skráum þig!

Takk fyrir að skrá þig!