KA Íslandsmeistarar annað árið í röð

KA varð í dag Íslandsmeistari karla í blaki annað árið í röð og í níunda skipti alls eftir sigur á Þrótti Reykjavík í fjórða leik úrslitaeinvígisins. Akureyringar mættu til leiks með 2-1 forystu í einvíginu og tókst að tryggja sér titilinn eftir mikla spennu í Laugardalnum.

Heimamenn í Þrótti byrjuðu af krafti og unnu fyrstu hrinuna en KA jöfnuðu metin í annarri hrinu. Þróttur tók forystuna á ný í þeirri þriðju og voru þá aðeins einni hrinu frá því að knýja fram fimmta leik í einvíginu.

KA-menn sýndu hins vegar mikinn styrk og knúðu fram oddahrinu og reyndust þar sterkari á lokasprettinum. Með 10-15 sigri í úrslitahrinunni innsigluðu þeir sigrinum í leiknum og fögnuðu Íslandsmeistaratitlinum.

Vikulegt fréttabréf

Fáðu helstu fréttir vikunnar frá Kaffið.is í tölvupósthólfið.

Vinsamlegast bíddu meðan við skráum þig!

Takk fyrir að skrá þig!