Allir með í Júdó – Myndband

Júdófélag Íslands og Júdódeild KA voru mætt á Allir með viðburð ÍBA, Þór og KA í Naustaskóla sunnudaginn 22. mars síðastliðinn. Árni og Hreiðar frá Gonzo.Creation mættu með myndbandsvélina á svæðið og fönguðu stemninguna. Myndband má sjá að hér að neðan.

Júdódeildin kom til að þjálfa júdí á einni stöð á viðburði sem svæðisstöðvar íþróttahéraða á Norðurlandi Eystra, ÍBA, HSÞ, UMSE, UÍF og íþróttafélögin á svæðinu stóðu fyrir. Var þetta síðasti viðburðurinn af fjórum sem var hérna á svæðinu en fyrri viðburðir voru haldnir á Húsavík (HSÞ), Dalvík (UMSE) og Ólafsfirði (UÍF). ÍBA, Þór og KA ásamt svæðisstöðvunum höfðu yfirumsjón með þessum loka viðburði. Þarna voru þjálfarar frá Þór og KA sem eru að þjálfa á Allir með æfingunum sem félögin tvö standa fyrir í Naustaskóla á sunnudögum og þar var ýmislegt annað í boði.

Verkefnið „Allir með“ er samstarfsverkefni ÍSÍ, UMFÍ og ÍF (Íþróttasamband fatlaðra). Verkefnið er styrkt af Félags- og vinnumálaráðuneytinu, Heilbrigðisráðuneytinu og Mennta- og barnamálaráðuneytinu.

Sjáðu myndbandið:

Vikulegt fréttabréf

Fáðu helstu fréttir vikunnar frá Kaffið.is í tölvupósthólfið.

Vinsamlegast bíddu meðan við skráum þig!

Takk fyrir að skrá þig!