Tryggvi lyftir bikarnum

Tryggvi vann Evrópubikarinn annað árið í röð

Körfuknattleiksmaðurinn Tryggvi Snær Hlinason var í lykilhlutverki með liði sínu Bilbao Basket þegar liðið vann Evrópubikar FIBA annað árið í röð í gærkvöldi. Tryggvi er fyrirliði spænska liðsins.

Bilbao mætti PAOK frá Grikklandi í tveggja leikja úrslitaeinvígi. Tryggvi og félagar töpuðu fyrri leiknum með sex stiga mun en unnu þann mun upp á heimavelli sínum á Spáni í gær og fögnuðu 89-74 sigri. Bilbao Basket vann því einvígið samtals 162-153. Tryggvi skoraði alls níu stig í leiknum og tók sjö fráköst, flest af öllum í leiknum. Þá gaf hann fimm stoðsendingar.

„Það að vinna tvo titla í röð væri stórkostlegt. Ekki bara fyrir okkur leikmennina heldur líka stuðningsmennina, félagið og borgina,“ sagði Tryggvi í viðtali við heimasíðu FIBA fyrir leikinn.

Vikulegt fréttabréf

Fáðu helstu fréttir vikunnar frá Kaffið.is í tölvupósthólfið.

Vinsamlegast bíddu meðan við skráum þig!

Takk fyrir að skrá þig!