Þríburar tróðu upp á Græna Hattinum

Ágúst Þór Brynjarsson hélt útgáfutónleika fyrir plötuna Hjartað á milljón á Græna Hattinum um síðustu helgi. Hjartað á milljón kom út á Sumardaginn fyrsta og á útgáfutónleikunum fékk Ágúst þríburasystkini sín Rúnar Þór og Særúnu Önnu upp á svið til að syngja með sér.

Þetta var í fyrsta sinn í sögu Græna Hattsins sem að þríburar troða upp. Ágúst segir að langþráður draumur hafi ræst þegar hann fékk að syngja með systkinum sínum á sviðinu.

Það er nóg um að vera hjá Ágústi eins og vanalega og um þessar mundir er hann að leggja lokahönd á að skipuleggja tónleikaferðalag þar sem að hann mun halda 16 tónleika í jafn mörgum sveitarfélögum. Þá mun hann stýra Brekkusöngnum á Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum í sumar.

Vikulegt fréttabréf

Fáðu helstu fréttir vikunnar frá Kaffið.is í tölvupósthólfið.

Vinsamlegast bíddu meðan við skráum þig!

Takk fyrir að skrá þig!