Hagnaður af rekstri Sparisjóðs Þingeyinga 223,7 milljónir króna

Aðalfundur Sparisjóðs Þingeyinga var haldinn 22. apríl s.l. í Breiðumýri í Reykjadal.  Rekstur sparisjóðsins gekk vel á síðasta ári, hagnaður af starfseminni var 223,7 milljónir króna eftir skatta.

Um síðustu áramót voru heildareignir sparisjóðsins 15,7 milljarðar króna og hafa aukist um einn milljarð króna á milli ára.  Innlán voru á sama tíma 13,6 milljarðar.  Eigið fé sparisjóðsins var ríflega 1,7 milljarður í árslok og lausafjárstaða sparisjóðsins er áfram sterk.

20 milljónir króna í samfélagsstyrki á síðasta ári

Á aðalfundinum voru afhentir styrkir að fjárhæð 9 milljónir króna.  Ennfremur kom fram í skýrslu Margrétar Hólm Valsdóttur, fráfarandi stjórnarformanns, að á síðasta ári greiddi Sparisjóður Þingeyinga út samtals 20 milljónir króna í samfélagsstyrki á starfssvæði sínu.

Í Þingeyjarsýslum eru átta björgunar- hjálparsveitir, á myndinni (MYND 1: (Aðalfundur 2026_1) eru fulltrúar þeirra flestra ásamt Erni Arnari Óskarssyni sparisjóðsstjóra, lengst til hægri á myndinni.  Sparisjóðurinn veitti sveitunum samtals 4 milljóna króna styrk til að efla ungliðastarf björgunarsveitanna.

Auk þess tóku fulltrúar eftirtalinna félaga á móti 1 milljóna króna styrk hver, samtals 5 milljónir.

•                    Rauði krossinn í Þingeyjarsýslu

•                    Húsmæðraskólinn á Laugum (Kvenfélagasambandið)

•                    Krabbameinsfélag Norðausturlands

•                    Krabbameinsfélag Suður-Þingeyinga

•                    Fab Lab á Húsavík

MYND 2 (Aðalfundur 2026.jpg): Fulltrúar styrkþega, frá vinstri Sæmundur Þór Sigurðsson, Stefán Pétur Sólveigarson, Ásgerður Arnardóttir, Sigrún Jónsdóttir og Örn Arnar Óskarsson.

Nýkjörin stjórn sparisjóðsins

Eftirtalin hlutu kjör í stjórn sparisjóðsins næsta starfsár: Berglind Pétursdóttir, Dagbjört Jónsdóttir, Eiríkur H. Hauksson, Pétur Jónsson og Sigríður Jóhannesdóttir.

Varamenn, Bergþór Bjarnason og Pétur B. Árnason.

Vikulegt fréttabréf

Fáðu helstu fréttir vikunnar frá Kaffið.is í tölvupósthólfið.

Vinsamlegast bíddu meðan við skráum þig!

Takk fyrir að skrá þig!