Leigulausnir ehf. hafa tekið við rekstri Hótel Norðurland, 41 herbergja hótels í miðbæ Akureyrar. Með yfirtökunni stígur félagið mikilvægt skref í áframhaldandi uppbyggingu á þjónustu sinni innan ferðaþjónustu.
Leigulausnir, sem fagna 7 ára afmæli í júní næstkomandi, sérhæfa sig í rekstri og þjónustu við skammtímaleigu fyrir einstaklinga og fyrirtæki. Félagið sinnir m.a. bókunum, þrifum, verðstýringu, samskiptum við gesti og daglegum rekstri eigna, og hefur byggt upp sterka innviði á þeim sviðum.
Rekstur Hótel Norðurland fellur vel að núverandi starfsemi félagsins. Leigulausnir hafa yfir að ráða eigin þvottahúsi, reynslumiklu starfsfólki í þrifum og umsjón, ásamt öflugum rekstrarkerfum sem nýtast beint inn í hótelreksturinn.
Markmið með yfirtökunni er að byggja upp starfsemina enn frekar, bæta gæði þjónustunnar og straumlínulaga reksturinn með áherslu á skilvirkni og góða upplifun gesta.
„Þetta er spennandi skref fyrir okkur. Við sjáum mikil tækifæri í rekstri Hótel Norðurland og hlökkum til að þróa starfsemina áfram með okkar nálgun og reynslu,“ segir Arnar Elíasson.










