Vegna bílasýningar í Boganum á Akureyri á morgun 17. júní, verður einungis leyfð einstefna um Skarðshlíð frá klukkan 10-18. Þetta kemur fram í tilkynningu á vef Akureyrarbæjar.
Akstursleiðin verður til austurs og gert er ráð fyrir að hægt verði að leggja bílum að norðanverðu í götuna.
Þetta er gert til að forðast allt umferðaröngþveiti því gera má ráð fyrir mjög góðri aðsókn að sýningu Bílaklúbbs Akureyrar í Boganum eins og undanfarin ár.
Minnt er á siðareglur Bíladaga:
-
Við göngum og keyrum vel um bæinn okkar, jafnt gestir sem heimamenn.
-
Virðum hámarkshraða í íbúðarhverfum sem og á vegum úti.
-
Við spólum einungis á akstursíþróttasvæði Bílaklúbbs Akureyrar.
-
Gestir Bíladaga eru jákvæðir og þar af leiðandi þrælskemmtilegir.
-
Við berum virðingu fyrir náunganum og gerum Bíladaga frábæra.
-
Gestir Bíladaga ganga snyrtilega um umhverfi sitt.










