Tillaga að nýrri innilaug. Mynd: Form/Ágúst Hafsteinsson

Styttist í opnun á nýrri innilaug

Endurnýjuð innilaug á Akureyri verður opnuð á næstu vikum, eftir rúm tvö ár af framkvæmdum. Frá þessu var greint á RÚV. 

Nýja laugin er byggð á grunni gömlu innilaugarinnar og er staðsett í kjallara Sundlaugar Akureyrar. Rýmið hefur verið flísalagt upp á nýtt, veggurinn sem snýr út að andapollinum hefur verið færður lengra út og gluggar stækkaðir. Nýja innilaugin verður því mun bjartari og opnari en sú gamla.

Forstöðumaður Sundlauga Akureyrar, Gísli Rúnar Gylfason, segir í samtali við RÚV að endurnýjun innilaugarinnar sé einkar jákvæð þegar litið er til viðkvæmra hópa. „Það hafi verið erfitt að komast ofan í og upp úr gömlu lauginni þar sem bakkar hennar hafi verið svo háir. Háu bakkarnir hafi verið fjarlægðir og aðgengi bætt enn frekar með rampi ofan í laugina.“

Að sögn Gísla er allt tilbúið og næsta skref að prufukeyra nýju laugina með því að hleypa í hana vatni. 

Vikulegt fréttabréf

Fáðu helstu fréttir vikunnar frá Kaffið.is í tölvupósthólfið.

Vinsamlegast bíddu meðan við skráum þig!

Takk fyrir að skrá þig!