Ungmennafélagið Samherjar er fjölgreina íþróttafélag í Eyjafjarðarsveit. Félagið var stofnað árið 1996 við sameiningu þriggja ungmennafélaga í sveitinni — Umf. Árroðans, Umf. Framtíðar og Umf. Vorboðans — og starfar áfram í þeirra anda. Samherjar eru aðildarfélag að Ungmennasambandi Eyjafjarðar (U.M.S.E.).
Í dag bjóða Samherjar upp á ellefu deildir — allt frá körfubolta, fótbolta og frjálsum íþróttum til badmintons, blaks, dans og vatnsleikfimi, auk leikjaskóla fyrir yngstu iðkendurna.
Þann 28. júní verður haldið upp á 30 ára afmæli félagsins.
Afmælishátíðin fer fram við víkingaskipið á Hrafnagilsskólalóðinni og er hluti af Landsmóti 50+, sem verður haldið í Hrafnagilshverfinu síðar í mánuðinum.
Það verður meðal annars boðið upp á:
-
Grillaðar pylsur og drykki
-
Hoppukastala
-
Andlitsmálun fyrir krakkana
-
Tónlist og góða stemningu
-
Leiki og skemmtilega afþreyingu fyrir alla aldurshópa
„Þrjátíu ár er stór áfangi og við viljum nota tækifærið til að þakka öllum þeim sem hafa verið hluti af starfinu í gegnum árin. Hvort sem þú ert núverandi félagsmaður, fyrrverandi iðkandi, foreldri, sjálfboðaliði eða einfaldlega aðdáandi félagsins þá ertu hjartanlega velkomin(n),“ segir í tilkynningu frá Samherjum.










