Sæludagar í Hörgársveit um helgina

Dagana 19. til 21. júní verður boðið upp á fjölbreytta hátíðardagskrá um alla Hörgársveit þar sem íbúar, félög og fyrirtæki taka höndum saman um að skapa notalega hátíðarstemningu. Hátíðin byggir að miklu leyti á samveru, samfélagsanda og öflugu sjálfboðastarfi heimamanna.

Fjölbreyttir viðburðir fyrir alla fjölskylduna

Dagskrá helgarinnar er margvísleg og sniðin að öllum aldurshópum. Á meðal þess sem boðið verður upp á er skottmarkaður og sölubásar með handverk, auk þess sem hoppukastalar og andlitsmálning verða í boði fyrir yngri kynslóðina. Þá stendur gestum einnig til boða að mæta í sundlaugarpartý, gæða sér á vöfflukaffi, taka þátt í fjölskyldugöngu og njóta kvöldsins við sæludagsbrennu, svo eitthvað sé nefnt.

Nánar um dagskrána má finna á vef Hörgársveitar.

Vikulegt fréttabréf

Fáðu helstu fréttir vikunnar frá Kaffið.is í tölvupósthólfið.

Vinsamlegast bíddu meðan við skráum þig!

Takk fyrir að skrá þig!