Ljósmynd: af Vísi - Reitir

Reitir reisa hjúkrunarheimili í Þursaholti

Framkvæmdasýslan – Ríkiseignir tilkynnti Reitum að tilboði félagsins í útboði um uppbyggingu nýs hjúkrunarheimilis á Akureyri hafi verið valið. Var tilboðið metið hagstæðast samkvæmt valforsendum útboðslýsingar. Þetta kemur fram í tilkynningu Reita til Kauphallarinnar.

Samkvæmt tilkynningunni mun hjúkrunarheimilið rísa við Þursaholt 6, vera 9.100 fermetrar að stærð og mun hýsa 140 hjúkrunarrými. Leigutilboð Reita nemur 5.800 kr. á fermetra sem samsvarar 633 m. kr. á ári og er rekstrarávöxtun af framkvæmdinni áætluð um 6% af framkvæmdakostnaði sem gert er ráð fyrir að verði um 8.900 m. kr. 

Að framkvæmdum loknum tekur við verðtryggður leigusamningur milli Reita og Ríkiseigna til 25 ára um hjúkrunarheimilið þar sem Reitir annast rekstur húsnæðisins en Ríkiseignir fela öðrum rekstur hjúkrunarheimilisins.  

Vikulegt fréttabréf

Fáðu helstu fréttir vikunnar frá Kaffið.is í tölvupósthólfið.

Vinsamlegast bíddu meðan við skráum þig!

Takk fyrir að skrá þig!