Mynd: SA

Barnastarf Skautafélags Akureyrar hlýtur sína virtustu viðurkenningu til þessa

Skautafélag Akureyrar hlaut Kånken Youth Retention Award 2026, sem er ein virtasta viðurkenningin sem er veitt fyrir barnastarf og þátttöku í íshokkí. Afhending verðlaunanna átti sér stað síðastliðinn þriðjudag á verðlaunahátíð samtaka evrópskra íshokkífélaga (EHC) í Prag. Sarah Smiley, íþróttastjóri SA, tók við verðlaununum ásamt eiginmanni sínum Ingvari Jónssyni. Þetta kemur fram á vef SA.

Viðurkenningin byggir meðal annars á því öfluga og markvissa starfi sem SA hefur unnið í þágu barna og ungmenna. Þá var sérstaklega horft til þess hvernig félagið hefur stuðlað að víðtækri þátttöku og jöfnum tækifærum.

„Um 40% iðkenda félagsins eru stúlkur og um 40% ungmennaþjálfara félagsins konur, sem endurspeglar þá áherslu félagsins að skapa umhverfi þar sem allir eiga möguleika til þátttöku og framfara. Brottfall á unglingsaldri er lítið og það vakti einnig athygli hvernig stúlkur og drengir æfa og keppa saman fram á unglingsár. Félagið hefur markvisst unnið að því að tryggja öllum sömu tækifæri til þátttöku, framfara og félagslegrar tengingar. Jafnframt vakti athygli dómnefndar hvernig félagið hefur leitast við að minnka hindranir fyrir fjölskyldur með sérstökum úrræðum fyrir yngstu iðkendurna. Þar má nefna aðstoð við æfinga- og keppnisbúnað auk frístundarrútu sem auðveldar börnum að komast á æfingar. Þessi úrræði hafa gert fjölmörgum börnum kleift að stunda íshokkí sem ella hefðu átt erfiðara með þátttöku,“ segir á vef SA.

Verðlaunaféð verður nýtt til frekari uppbyggingar á starfsemi SA.

„Með verðlaununum fylgir styrkur að upphæð 10.000 evrur sem SA mun nýta til að efla enn frekar barna- og unglingastarf félagsins. Áherslan verður fyrst og fremst á menntun og þróun þjálfara með aukinni þjálfaramenntun, handleiðslu ungra þjálfara og áframhaldandi uppbyggingu á innra þjálfarakerfi félagsins. Markmiðið er að styrkja enn frekar það umhverfi sem hefur skilað félaginu þessari viðurkenningu og tryggja að sem flest börn geti notið góðs af starfinu til framtíðar.“

Hér má lesa tilkynninguna á vef SA í heild sinni.

Vikulegt fréttabréf

Fáðu helstu fréttir vikunnar frá Kaffið.is í tölvupósthólfið.

Vinsamlegast bíddu meðan við skráum þig!

Takk fyrir að skrá þig!