Veðrið á Norðurlandi verður ekkert sérstakt í dag, á Þjóðhátíðardegi Íslendinga, ef marka má veðurspá Veðurstofu Íslands.
Þar kemur fram að á Akureyri megi búast við dálítilli rigningu og 7 til 11 stiga hita í dag.
Auglýsing - Vilt þú auglýsa hér?
Í tilefni af deginum verða hins vegar fjölbreytt hátíðarhöld um allan bæ og mikil stemning í loftinu, þrátt fyrir bág veðurskilyrði. Bæjarbúar eru hvattir til að njóta hátíðarinnar – og klæða sig eftir veðri.
Sjá einnig: Dagskrá 17. júní tilkynnt










