Ljósmynd: FM957

Dóri Ká byrjar á FM957

Athafnamaðurinn Halldór Kristinn Harðarson, sem flestir akureyringar ættu að þekkja, mun byrja senda út þætti á FM957 beint frá Akureyri allar helgar milli klukkan 16-18. Fyrsti þáttur fer í loftið næstkomandi laugardag, þann 20. júní.

Dóri segir þetta spennandi tækifæri til þess að koma Norðlandinu aðeins meira inn í útvarpið og bætir við að hann muni fjalla mikið um Akureyri en að sjálfsögðu ekki einungis, heldur líka það sem er að gerast á öllu landinu.

Áhugasamir geta verið í sambandi við Halldór ef þeir vilja auglýsa í þættinum.

Vikulegt fréttabréf

Fáðu helstu fréttir vikunnar frá Kaffið.is í tölvupósthólfið.

Vinsamlegast bíddu meðan við skráum þig!

Takk fyrir að skrá þig!