www.danielstarrason.com

Tónlistarhátíðin Kveldúlfur verður haldin í annað sinn á Hjalteyri í sumar

Leyni kynnir: Tónlistarhátíðin Kveldúlfur fer fram á Hjalteyri laugardaginn 15. ágúst 2026, þar sem fjölbreyttur hópur íslenskra tónlistarmanna kemur fram í einstöku umhverfi við Eyjafjörð.

Í ár eru nokkrir Akureyringar á lista yfir flytjendur, eins og Saint Pete, RAKEL og Pitenz.

Auk þeirra koma fram:
Hjálmar
Bent
Benni Hemm Hemm
Inspector Spacetime
Salóme Katrín
Kusk & Óviti
Amor Vincit Omnia

Hátíðarsvæðið er staðsett utandyra í portinu á milli Verksmiðjunnar á Hjalteyri og Kraftlyftingafélags Akureyrar (KAF), þar sem grár iðnaðarsjarminn mætir Eyjafirði. Hjalteyri hefur á síðustu árum fest sig í sessi sem öflugur vettvangur lista og menningar og býður upp á einstaka umgjörð fyrir tónlistarhátíð. Þrátt fyrir að vera aðeins um fimmtán mínútna akstur frá Akureyri er staðurinn í allt öðrum takti, þar sem nálægðin við listafólkið, umhverfið og samfélagið skapar eftirminnilega stemningu.

Sara Bjarnason er listrænn verkefnastjóri hátíðarinnar og segist vera að springa úr spenningi.

„Ég er ótrúlega spennt fyrir hátíðinni í ár. Við fórum hægt og rólega af stað í fyrra og erum að gefa aðeins í núna með tvöfalt fleiri atriði. Við lítum mikið upp til annarra hátíða í kringum okkur, svo sem Aldrei fór ég suður, Bræðslunnar og Mannfólkið breytist í slím þar sem dagskrár eru fjölbreyttar og flestir geta fundið eitthvað við sitt hæfi. Okkur langar að skapa vettvang þar sem fólk kemur til að njóta menningar og samfélags hvort við annað. Miðaverðið er hóflegt, enda trúum við því að menning eigi að vera öllum aðgengileg. Á svæðinu verða matarvagnar og veitingastaðurinn Eyri auðvitað, en svo er fólki velkomið að taka með eigið nesti.“

Sara hvetur fólk til að gefa sér tíma til að hlusta á þessa fjölbreyttu flytjendur og vera þannig orðið vel heitt áður en hátíðin hefst í ágúst.

,,Hvert og eitt atriði er valið af mikilli gaumgæfni, algjört creme de la creme,“ bætir hún við.

Kveldúlfur leggur áherslu á vandaða dagskrá, nánd milli listafólks og gesta og upplifun þar sem tónlist, samfélag og náttúra mætast. Hátíðin dregur nafn sitt af gömlu síldarverksmiðjunni sem stendur við hátíðarsvæðið og vísar þannig til sögu staðarins um leið og hún horfir til nýrrar menningarstarfsemi á Hjalteyri.

Sara leggur áherslu á mikilvægi þess að viðhalda lifandi menningu á landsbyggðinni.

„Til þess að menning geti þrifist í heimabyggð verður fólk að taka þátt og því vonumst við til að sjá sem flesta á Kveldúlfi 15. ágúst!“

Miðasala á hátíðina er í fullum gangi og er forsöluverð 8.990 kr. fyrir takmarkað magn miða. Eftir það verður fullt verð 12.990 kr. Miðasala er á www.kveldulfurfestival.is.

Hér má sjá myndir frá Kveldúlfi í fyrra:

Vikulegt fréttabréf

Fáðu helstu fréttir vikunnar frá Kaffið.is í tölvupósthólfið.

Vinsamlegast bíddu meðan við skráum þig!

Takk fyrir að skrá þig!