www.danielstarrason.com

„Augljósir sigurvegarar bæjarstjórnarkosninganna á Akureyri“

S-listi Samfylkingarinnar á Akureyri hlaut 16,7 prósent atkvæða og 2 bæjarfulltrúa í sveitarstjórnarkosningum á Akureyri sem fóru fram í gær, 16. maí. Sindri S. Kristjánsson, oddviti Samfylkingarinnar á Akureyri segir að Samfylkingin sé augljós sigurvegari kosninganna á Akureyri í ár.

„Við erum sátt og sæl með niðurstöður kosninganna. Við bætum verulega við okkur frá því síðast, mest allra flokka, og erum þannig augljósir sigurvegarar bæjarstjórnarkosninganna á Akureyri að þessu sinni. Niðurstöðurnar bjóða auðvitað upp á þó nokkra kosti þar sem við tökum þátt í að mynda meirihluta, en allt veltur það auðvitað á vilja annarra til að starfa með okkur,“ segir Sindri í samtali við Kaffið.is.

„Við sjáum jafnframt að þrátt fyrir ákveðna hægri beygju á landsvísu gekk Samfylkingunni afar vel á okkar svæði, allt frá Fjallabyggð til Fjarðabyggðar. Það er augljóst að áherslur á jöfnuð, velferð og samfélag þar sem við tökum ábyrgð hvert á öðru eiga vel upp á dekk hjá kjósendum í Norðaustur kjördæmi,“ segir Sindri.

Samfylkingin náði eins og fyrr segir inn tveimur bæjarfulltrúum og bæta við sig einum bæjarfulltrúa frá síðustu kosningum. Sindri og Hanna Dóra Markúsdóttir eru því kjörnir bæjarfulltrúar Samfylkingarinnar. Sindri segir það gríðarlegan feng fyrir Akureyringa að fá hana inn.

„Hanna Dóra er auðvitað ein traustasta og heilsteyptasta manneskja sem ég hef kynnst á lífsleiðinni, allt frá því að hún kenndi mér dönsku og náttúrufræði í Brekkuskóla fyrir mjög mörgum árum síðan. Það er gríðarlegur fengur fyrir mig sem og aðra Akureyringa að fá hana inn í bæjarstjórn.“

Vikulegt fréttabréf

Fáðu helstu fréttir vikunnar frá Kaffið.is í tölvupósthólfið.

Vinsamlegast bíddu meðan við skráum þig!

Takk fyrir að skrá þig!