Nefnd um eftirlit með lögreglu hefur vísað kvörtun manns sem var handtekinn á Akureyri sumarið 2023 til héraðssaksóknara. Þetta kemur fram á vef RÚV.
Maðurinn var handtekinn af sérsveitarmönnum á Ráðhústorgi á Akureyri og telur að einn þeirra hafi beitt sig óhóflegu valdi við aðgerðina. Samkvæmt umfjöllun RÚV heldur hann því fram að sérsveitarmaðurinn hafi:
,,lagst af fullum þunga með hné á háls hans’’.
Þá kemur fram í bréfi frá ríkislögreglustjóra til nefndarinnar að maðurinn hafi streist á móti við handtöku. Þar segir jafnframt að maðurinn hafi hótað lögreglumönnunum og beint að þeim svívirðingum.
Hvorki upptökur úr búkmyndavélum né svokölluðum eyewitness-búnaði liggja fyrir í málinu, en á öðru myndefni sem nefndin hafði til athugunar sést þó að hné sérsveitarmanns er við háls mannsins um stund.
Nefndin telur ekki unnt að útiloka refsiverða háttsemi og vísar málinu því til héraðssaksóknara til frekari meðferðar.










