Ljósmynd: Flugsafnið

Flugdagur Flugsafnsins

Helgina 19.–21. júní fer hin árlega Fly-In flughátíð fram á Melgerðismelum. Eins og undanfarin ár er hátíðin haldin samhliða Flugdegi Flugsafns Íslands, sem fer fram laugardaginn 20. júní.

Dagskrá Flugdagsins laugardaginn 20. júní

Flugdagurinn verður haldinn á Akureyrarflugvelli á milli kl. 13:00 og 16:00. Í ár er Landhelgisgæsla Íslands í öndvegi í tilefni af 100 ára afmæli stofnunarinnar. Svæðið opnar klukkan 13:00 og stundarfjórðungi síðar mun Logi Einarsson menningarmálaráðherra setja Flugdaginn, því verður fylgt eftir með dagskrá á vegum Landhelgisgæslunnar. Sjálf flugsýningin hefst svo klukkan 14:00.

Hagnýtar upplýsingar

Gengið er inn um aðalinngang Flugsafns Íslands á Akureyrarflugvelli. Aðgangseyrir er 1.000 kr. fyrir 13 ára og eldri. Til að flýta fyrir við innganginn og stytta biðraðir verður miðasalan tvískipt, annars vegar fyrir þau sem greiða með korti og hins vegar fyrir þau sem greiða með reiðufé. Vakin er athygli á því að gæludýr eru ekki leyfð á svæðinu.

Nánari upplýsingar á vef Flugsafnsins.

Vikulegt fréttabréf

Fáðu helstu fréttir vikunnar frá Kaffið.is í tölvupósthólfið.

Vinsamlegast bíddu meðan við skráum þig!

Takk fyrir að skrá þig!