Ný styttist óðum í sveitarstjórnarkosningar, en þær fara fram laugardaginn 16. Maí næstkomandi. Akureyringar munu þá kjósa sér nýja bæjarstjórn og geta valið milli átta framboðslista. Til þess að hjálpa lesendum að gera upp hug sinn hefur Kaffið sent út stuttan spurningalista á oddvita allra framboða í sveitarfélaginu. Svör þeirra verða birt í oddvitaspjöllum sem þessu á næstu dögum og vikum.
Oddvitaspjallið að þessu sinni er við Hlyn Jóhannsson, oddvita M-lista Miðflokksins
Hver eru helstu stefnumál þíns framboðs fyrir komandi kosningar?
Ábyrgur og skynsamur rekstur bæjarfélagsins verður áfram leiðarstef í allri vinnu Miðflokksins á Akureyri, þetta er lykilatriði til að geta haldið áfram að bæta þjónustu við íbúana.
Við viljum lækka útsvarsprósentuna því við teljum að svigrúm sé að skapast til að lækka álögur á íbúa sveitarfélagsins og teljum að lækkun útsvars sé árangursrík leið þar sem hún nýtist þeim einum sem búa í sveitarfélaginu.
Við viljum vernda græn svæði bæjarins, við viljum því ekki frekari þéttingu byggðar þar sem við teljum mikilvægt að vernda opin og græn svæði bæjarins sem útivistarsvæði. Því stærri sem bærinn verður því mikilvægari verða þessi svæði fyrir íbúana.
Vellíðan og farsæld barna verður að vera í forgrunni í öllu skólastarfi, við viljum efla stuðning við börn og ungmenni í skólakerfinu á Akureyri með því að fjölga sérhæfðu fagfólki í skólasamfélaginu.
Við viljum styðja við þátttöku barna og ungmenna í íþróttum og hreyfingu en það er eitt mikilvægasta lýðheilsumál samfélagsins. Við viljum styðja við öflugt íþróttastarf á Akureyri og tryggja að öll börn hafi raunverulegt aðgengi að þátttöku óháð aðstæðum eða þörfum.
Er eitthvað við bæinn okkar sem þér finnst ganga sérstaklega vel eins og staðan er í dag og þú vilt standa sérstakan vörð um?
Mér finnst okkur hafa tekist mjög vel upp með uppbyggingu og endurbætur á leik- og grunnskólum bæjarins og munum við halda því ótrauð áfram.
Uppbygging á íþróttasvæðum bæjarins gengur einnig mjög vel og svo er afar skemmtilegt að sjá Móahverfi byggjast upp hratt og örugglega svo eitthvað sé nefnt.
Á hinn bóginn, er eitthvað við bæinn okkar sem þér finnst ekki ganga nógu vel eins og staðan er í dag og þú vilt kippa í lag?
Í ljósi þess að við höfum lengi verið klár með lóðir fyrir ríkið til þess að reisa hjúkrunarheimili er sorglegt að það skuli ekki vera komið á laggirnar, þar sem mikil vöntun er á hjúkrunarrýmum.
Einnig hefði ég viljað sjá tjaldsvæðisreitinn og Akureyrarvöll vera komin af stað í uppbyggingu en vonandi gerist það fljótlega á nýju kjörtímabili.
Nú eru fyrstu sveitarstjórnarkosningar síðan Akureyri var formlega skilgreind sem svæðisborg síðasta haust. Hvað þarf að þínu mati að gera til þess að styðja við borgarhlutverkið?
Bærinn þarf númer 1, 2 og 3 að fá meira fé frá Ríkinu til að standa undir því hlutverki að vera þessi svæðisborg sem hann á að vera. Á ég þá aðallega við hvað varðar menningu og listir. Svo þarf Ríkið að styðja miklu betur við Sjúkrahúsið svo það geti staðið undir því hlutverki að sinna öllu Norðaustur svæðinu, Háskólann svo hann geti haldið áfram að vaxa og dafna og orðið eitt af aðdráttaröflum Akureyrar svo ég tali nú ekki um Flugvöllinn sem þarf að tryggja að verði önnur gátt inn í landið og flugstöð stækkuð í samræmi við allt það flug sem þegar er farið að streyma hingað til Akureyrar.
Hvernig finnst þér Akureyrarbær standa sig í málefnum Hríseyjar og Grímseyjar? Er eitthvað sem þú og þitt framboð viljið gera öðruvísi?
Ég held að heilt yfir séum við að standa okkur mjög vel hvað varðar málefni Hríseyjar og Grímseyjar, eyjarnar fá báðar mikið pláss í umræðum Bæjarráðs, t.a.m. töluvert meira en önnur hverfi bæjarins.
Ein létt að lokum, hvernig tekurðu kaffið þitt?
Ég hef aldrei orðið þess heiðurs aðnjótandi að drekka kaffi.








