Hinsegin hátíð á Norðurlandi eystra hófst í dag og stendur yfir dagana 18.–21. júní.
Á vef Akureyrarbæjar segir að markmið hátíðarinnar sé að auka sýnileika LGBTQ+ samfélagsins og byggja upp samfélag sem er opið og öruggt fyrir alla íbúa og gesti. Hátíðin byggir á því starfi sem unnið hefur verið í Hrísey en fyrsta Hinsegin hátíðin þar var haldin árið 2023.
Elísabet Ögn verkefnastjóri hátíðarinnar segir að mikilvægt sé að samfélagið taki virkan þátt. „Hinsegin hátíðin er tækifæri til að fagna fjölbreytileikanum, styrkja samfélagið og skapa rými þar sem öll geta verið þau sjálf. Við hvetjum öll til að koma og taka þátt,“ segir Elísabet á vef Akureyrarbæjar.
Öll sveitarfélög á Norðurlandi eystra, ásamt samtökunum Hinsegin Norðurland og Hinsegin hátíðinni í Hrísey, standa að hátíðinni.
Hægt er að skoða dagskrána á www.hinseginhatid.is.









