KA mætir Fram á Greifavellinum á Akureyri í tíundu umferð Bestu deildar karla í fótbolta klukkan 18 í kvöld.
Heimamenn eru í áttunda sæti deildarinnar með tíu stig og hafa tapað síðustu tveimur leikjum í röð. Framarar eru hins vegar í þriðja sæti með tuttugu stig og eru ósigraðir í síðustu fimm deildarleikjum, með fjóra sigra og eitt jafntefli.
Auglýsing - Vilt þú auglýsa hér?










