L-listinn, Framsókn og Sjálfstæðisflokkur í meirihlutaviðræðum

Meirihlutaviðræður á Akureyri eru hafnar á milli L-listans, Sjálfstæðisflokksins og Framsóknarflokksins. Þessu greindi Óðinn Svan Óðinsson, oddviti L-listans frá í viðtali við Kristján Kristjánsson í Sprengisandi á Bylgunni fyrir skömmu.

L-listinn tapaði manni til Samfylkingarinnar í kosningum en náði inn tveimur mönnum líkt og Sjálfstæðisflokkurinn, Framsókn og Samfylkingin. Meirihlutinn frá síðustu kosningum sem L-listinn, Sjálfstæðisflokkurinn og Miðflokkurinn mynduðu er fallinn.

Óðinn segir það ekki breyta neinu þó svo að L-listinn hafi tapað manni, það þurfi sex manna meirihluta og viðræður við Framsókn og Sjálfstæðisflokkinn séu hafnar.

„Það gengur vel á Akureyri og hér er fólk sátt. Við erum ekki að horfa ólíkt á hlutina. Við höfum átt í góðu samstarfi við Sjálfstæðisflokkinn og viljum láta á þetta reyna fyrsta kastið. Þetta eru mínar fyrstu viðræður. Við ætlum að flýta okkur hægt. Er það ekki hefðbundið svar? Við ætlum ekkert að drífa okkur með viðræðurnar.“

Vikulegt fréttabréf

Fáðu helstu fréttir vikunnar frá Kaffið.is í tölvupósthólfið.

Vinsamlegast bíddu meðan við skráum þig!

Takk fyrir að skrá þig!