Oddvitaspjall – Jana Salóme Ingibjargar Jósepsdóttir

Ný styttist óðum í sveitarstjórnarkosningar, en þær fara fram laugardaginn 16. Maí næstkomandi. Akureyringar munu þá kjósa sér nýja bæjarstjórn og geta valið milli átta framboðslista. Til þess að hjálpa lesendum að gera upp hug sinn hefur Kaffið sent út stuttan spurningalista á oddvita allra framboða í sveitarfélaginu. Svör þeirra verða birt í oddvitaspjöllum sem þessu á næstu dögum og vikum. 

Oddvitaspjallið að þessu sinni er við Jönu Salóme Ingibjargar Jósepsdóttur, oddvita V- Lista Vinstri hreyfingarinnar græns framboðs.

Hver eru helstu stefnumál þíns framboðs fyrir komandi kosningar?

Grunngildi Vinstri grænna eru jafnrétti, jöfnuður, réttlæti, kvenfrelsi, mannréttindi, umhverfis- og náttúruvernd og lýðræði. Við leggjum ríka áherslu á að húsnæði eigi að vera fyrir fólk en ekki fjárfesta og viljum fjölga íbúðum á vegum óhagnaðardrifinna leigufélaga. Við viljum tryggja að samfélagið okkar sé inngildandi og aðgengilegt öllum og teljum sterkt velferðarkerfi vera undirstöðu góðs samfélags. Við teljum nauðsynlegt að efla almenningssamgöngur, auðvelda fólki að komast leiðar sinnar og hlúa betur að grænum svæðum. Við viljum efla stuðning við grasrótarstarf í listum og menningu með auknu fjármagni og meira rými til sköpunar. Þá viljum við byggja 50 metra yfirbyggða sundlaug og efla skátastarf.

Er eitthvað við bæinn okkar sem þér finnst ganga sérstaklega vel eins og staðan er í dag og þú vilt standa sérstakan vörð um?

Við búum í fallegu og góðu samfélagi og við þurfum sífellt að standa vörð um það. Við eigum frábæra skóla á öllum skólastigum og þurfum að standa vörð um það góða starf sem þar er unnið og efla enn frekar.

Á hinn bóginn, er eitthvað við bæinn okkar sem þér finnst ekki ganga nógu vel eins og staðan er í dag og þú vilt kippa í lag?

Við viljum sjá meiri áherslu á jöfnuð og að þegar ákvarðanir eru teknar horft sé  til áhrifa á ólíka hópa, sérstaklega þeirra sem minna hafa á milli handanna. Okkur finnst nauðsynlegt að þegar að stefnur eru samþykktar, eins og Mannréttindastefna og Umhverfis- og loftslagsstefna að þetta séu ekki bara fögur orð á blaði heldur leiðarvísir og að farið sé eftir því sem er samþykkt.

Nú eru fyrstu sveitarstjórnarkosningar síðan Akureyri var formlega skilgreind sem svæðisborg síðasta haust. Hvað þarf að þínu mati að gera til þess að styðja við borgarhlutverkið?

Borgarhlutverk er auðvitað margþætt. Hér þarf að tryggja öflugt heilbrigðiskerfi, standa vörð um Háskólann á Akureyri og styðja við eflingu hans, almenningssamgöngur þurfa að vera í lagi bæði innan bæjarins og til og frá sveitarfélaginu, eins þarf að styðja við alþjóðaflug. Menning er mikilvægur hluti af öflugu borgarsamfélagi og svo þarf að huga sérstaklega að jaðarsettum hópum í samfélaginu. Mér finnst umræðan um „svæðisborg“ bera þess merki að verið sé að finna ný orð yfir veruleika sem þegar blasir þegar við. Akureyri er borg. Hvort það sé formlega orðað þannig alls staðar er fremur spurning um skilgreiningar, ákvörðun og tíma, frekar en formlega viðurkenningu.

Hvernig finnst þér Akureyrarbær standa sig í málefnum Hríseyjar og Grímseyjar? Er eitthvað sem þú og þitt framboð viljið gera öðruvísi?

Við þurfum að hafa það betur í huga að Akureyrarbær er fjölkjarna sveitarfélag og hlusta betur á íbúa eyjanna. Eyjarnar búa yfir vannýttum tækifærum þar sem rými er til að efla atvinnuuppbyggingu og fjölga íbúum. Við í VG höfum lagt okkur fram við að kynna okkur aðstæður og málefni eyjanna og viljum efla bæði samtal og samráð við íbúana. 

Ein létt að lokum, hvernig tekurðu kaffið þitt?

Á mínu heimili „þykist“ maðurinn minn hafa þetta allt á hreinu. Mikið er lagt upp úr uppáhellingum, þar sem allt er mulið og vigtað eftir kúnstarinnar reglum, tími tekinn og hitastig á vatninu mælt. En í raun drekk ég hvaða kaffi sem er, svo lengi sem að það er næg mjólk, enda alin uppá bílaverkstæði 😉 

Vikulegt fréttabréf

Fáðu helstu fréttir vikunnar frá Kaffið.is í tölvupósthólfið.

Vinsamlegast bíddu meðan við skráum þig!

Takk fyrir að skrá þig!