Mangó og kaffi kynningarviðburður

Sendiráð Indlands í Reykjavík, í samstarfi við Þróunarstofnun útflutnings á landbúnaðar- og unnum matvælum (APEDA) og Kaffiráð Indlands, stendur fyrir kynningarviðburði um indversk mangó og indverskt kaffi á Múlabergi á Akureyri dagana 25. og 26. júní frá klukkan 16 -18.

Markmið viðburðarins er að kynna fjölbreytileika, bragð og menningarlegt mikilvægi indverskra mangóa. Gestum gefst tækifæri til að upplifa fjölbreytt úrval gæðamangóa frá mismunandi svæðum Indlands, þar á meðal vel þekkt afbrigði eins og Alphonso, Kesar, Banganapalli og Dasheri.

Gestum verður boðið upp á indverskt kaffi og gefinn kostur á að fara í skynrænt ferðalag um fjölbreytt kaffiræktarsvæði Indlands. Þetta verður tækifæri til að fræðast um indverskt kaffi og kanna möguleika á kaffiviðskiptum milli Íslands og Indlands.

Berglind Ósk Guðmundsdóttir bæjarstjóri Akureyrar mun ávarpa samkomuna þann 25. júní milli klukkan 16-17.

Mælt er með að skrá sig í gegnum rafrænt eyðublað sem má finna hér.

Vikulegt fréttabréf

Fáðu helstu fréttir vikunnar frá Kaffið.is í tölvupósthólfið.

Vinsamlegast bíddu meðan við skráum þig!

Takk fyrir að skrá þig!