„Árangur okkar í þessum kosningum er kraftaverk“

Viðreisn bauð í fyrsta sinn fram á Akureyri í sveitarstjórnarkosningunum sem fóru fram um helgina. Lovísa Oktovía Eyvindsdóttir var oddviti flokksins og hún er ánægð með árangur kosninganna þrátt fyrir að Viðreisn hafi ekki náð inn manni í bæjarstjórn. Hún segir framtíð Viðreisnar á Akureyri bjarta.

„Grasrótin er að vaxa hratt og árangur okkar í þessum kosningum er kraftaverk. Viðreisn er í ríkisstjórn og við erum með fullt fang af verkefnum sem þarf að fara í hratt fyrir velsæld svæðisins og það er okkar hlutverk að ýta þeim áfram á rétta staði. Við höfum verk að vinna og ætlum að sýna að við getum ýmislegt, þrátt fyrir að vera „bara“ grasrót. Eitt stærsta verkefni Viðreisnar á Akureyri er þó að leggja hönd á plóg að styðja við vöxt flokksins á landsvísu, því Viðreisn er flokkur allra landsmanna – ekki bara Reykjavíkur eins og margir hafa viljað meina,“ segir Lovísa í samtali við Kaffið.

C-listi Viðreisnar hlaut 6 prósent atkvæða í kosningunum og það nægði ekki til að ná inn bæjarfulltrúa. Lovísa segir þó að Viðreisnarfólk geti tekið ofboðslega margt jákvætt úr kosningunum og kosningabaráttunni.

„Hversu rík við erum af mannauð er það fyrsta sem kemur upp í hugann. Fólk sem er tilbúið til að leggja blóð, svita og tár í sölurnar fyrir stefnuna okkar sem var að mínu mati stórgóð. Við lærðum mikið, söfnuðum í gagnabankann og elfdum tengslanetið til muna. Þetta er bara byrjunin.“

Að lokum sendir hún kærleiksríkar kveðjur til kjósenda á Akureyri.

„Það er ekkert grín að þurfa að velja á milli átta flokka og þið stóðuð ykkur eins og hetjur. Svo er mikilvægt að hætta ekki að fylgjast með, láta í sér heyra og nýta það vald sem íbúar á Akureyri hafa til stefnumótunar um framtíð Akureyrar,“ segir Lovísa.

Vikulegt fréttabréf

Fáðu helstu fréttir vikunnar frá Kaffið.is í tölvupósthólfið.

Vinsamlegast bíddu meðan við skráum þig!

Takk fyrir að skrá þig!