Frikki Dór stígur á svið með Sinfóníuhljómsveit Norðurlands í haust

Friðrik Dór og Sinfóníuhljómsveit Norðurlands sameina krafta sína á tónleikum í Hofi í haust, laugardaginn 3. október klukkan 20. Miðar eru komnir í forsölu.

„Friðrik Dór hefur fyrir löngu stimplað sig inn sem einn fremsti poppari landsins og hefur í gegnum árin samið hvern slagarann á fætum öðrum, allt frá „Hlið við hlið“ sem skaut honum á einni nóttu á íslenskan stjörnuhiminn, yfir í „Í síðasta skipti,” „Dönsum eins og hálfvitar!,” „Hringdu í mig” og miklu fleiri.  Hans einstaki stíll sem er blanda af poppi, dans og R&B mun nú sameinast í mögnuðum útfærslum SinfoniaNord og pophljómsveitar Friðriks Dórs á stórtónleikum í Hofi og Hörpu,“ segir í tilkynningu frá Hofi.

Vikulegt fréttabréf

Fáðu helstu fréttir vikunnar frá Kaffið.is í tölvupósthólfið.

Vinsamlegast bíddu meðan við skráum þig!

Takk fyrir að skrá þig!