Elvar Björn Ólafsson dúx. Mynd: Lilja Stefánsdóttir

Elvar Björn Ólafsson er dúx MA 2026

Á Þjóðhátíðardaginn 17. júní er brautskráning frá Menntaskólanum á Akureyri og í ár voru 161 stúdent brautskráður.

Skólameistari Karl Frímannsson hélt ræðu, alls fluttu 6 fulltrúar afmælisárganga ávarp og Viltė Petkutė fráfarandi forseti skólafélagsins Hugins hélt ávarp fyrir hönd nýstúdenta. Þetta kemur fram á vef MA.

Dúx skólans er Elvar Björn Ólafsson með meðaleinkunnina 9,64. Það er óhætt að segja að Elvar Björn hefur mörg járn í eldinum en nær engu að síður þessum góða námsárangri. Hann var í stjórn skólafélagsins í vetur, hefur undanfarin tvö ár leikið með LMA, náð góðum árangri í keppnum fyrir framhaldsskólanema í eðlisfræði, forritun og stærðfræði, er góður íþróttamaður, var á framboðslista stjórnmálaflokks fyrir sveitastjórnarkosningarnar og svo mætti áfram telja.

Semidúx var Anna Lóa Sverrisdóttir en hún var einnig í stjórn skólafélagsins í vetur og var virk í leikfélaginu og öðru félagsstarfi. Af þeim tíu nemendum sem hlutu ágætiseinkunn á stúdentsprófi voru fjögur í stjórn skólafélagsins svo það má með sanni segja að miklir námshestar hafi valist til stjórnar Hugins.

Hæstu einkunn í 1. bekk hlaut Tobías Þórarinn Matharel, Ragnheiður Alís Ragnarsdóttir í 2. bekk og Elvar Björn Ólafsson í 3. bekk.

Hvatningarverðlaun skólans hlaut Viltė Petkutė, sem var einmitt forseti skólafélagsins Hugins, en Hvatningarverðlaun MA hlýtur nemandi sem hefur jákvætt viðhorf til náms, skólans og nemenda og hefur jákvæð áhrif á samfélagið í kringum sig. Auk hennar fengu 17 aðrir nemendur tilnefningar til hvatningarverðlauna. Kennarar skólans senda inn umsagnir.

Fjölmargir nýstúdentar fengu verðlaun og viðurkenningar.

Deginum lýkur svo með hátíðarveislu í Íþróttahöllinni í kvöld en hana sækja nýstúdentar, fjölskyldur þeirra og starfsfólk skólans.

Um klukkan 23 fara nýstúdentar niður í bæ, marsera eftir göngugötunni og inn á Ráðhústorg þar sem þau syngja og dansa. Þau halda svo aftur upp í Höll og dansa inn í nóttina.

Hér má lesa greinina á vef MA í heild sinni.

Vikulegt fréttabréf

Fáðu helstu fréttir vikunnar frá Kaffið.is í tölvupósthólfið.

Vinsamlegast bíddu meðan við skráum þig!

Takk fyrir að skrá þig!